DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Hverfisgata íbúð 302 83

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
58.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.500.000 kr.
Fermetraverð
982.906 kr./m2
Brunabótamat
41.000.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22139212
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýlega uppgerða eign á frábæru verði;
Fasteignamat eignarinnar árið 2026 er 57.850.000,-  Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Hverfisgata 83 er virðulegt fjölbýlishús kallað Bjarnaborgin þar sem lokaður inngarður og vernduð ásýnd hússins og vönduð vinnubrögð við uppgerð hússins og íbúðanna sýna virðingu við sögu þess og Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða íbúð merkt 0302 við Hverfisgötu 83, 2ja herbergja íbúð í einstöku húsi í hjarta Reykjavíkur.
Eignin er skráð 58,5 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 52,1 fm. að gólffleti, sérgeymsla mekrt 01-0013 er 6,4 fm.
Íbúðin er á þriðju og efstu hæð og hluta til undir súð - gólfflötur er því nokkuð stærri en birt stærð gefur til kynna.

Íbúðirn er nýlega uppgerðr með pússuðu, gegnheilu Merbau-harðviðarparketi á gólfum, nýlegri innréttingu í eldhúsi ásamt eldhústækjum og ísskáp, gluggi í eldhúsi snýr inn í garðinn og er opnanlegur.
Stofa er björt með gluggum í vestur, gengið er út á svalir sem snúa í  austur inn í fallegan inngarð.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, það er opið rými en seljendur geta sett upp hurð.
Baðherbergi er dúklagt með baðkari, salerni og handlaug, mögulegt er að tengja þar þvottavél. Gluggi með opnalegu fagi er á baðherbergi. 
Forstofa - flestar með fataskáp eða aðstöðu til að setja upp fatahengi.
Í húsinu eru 15 tveggja herbergja íbúðir, allar með sérgeymslu, sameiginlegri vagna- hjólageymslu, sameiginlegu þvottahúsi og fallegum inngarði með bekkjum og gróðri. Stigahús í garðinum er með lyftu og því gott aðgengi að íbúðunum.
Geymsla íbúðarinnar er í sameiginlegu rými í kjallar merkt 01-0013, 6,4 fm að stærð. Í sameign á jarðhæð er rúmgott, sameiginlegt þvottahús.
Íbúar/eigendur geta sótt um íbúakort fyrir gjaldfrítt bílastæði skv. reglum Reykjavíkurborgar en einnig er bílastæðahúsið við Vitaorg stærsta bílastæðahús á höfuðborgarsvæðinu og almennt styst bið eftir langtíma leigu bílastæðis þar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverfisgata 83
Skoða eignina Hverfisgata 83
Hverfisgata 83
101 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
938 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Opið hús:14. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Háteigsvegur 23
105 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
123
827 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Bræðraborgarstígur 13
Bræðraborgarstígur 13
101 Reykjavík
98.9 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
77 m2
Atvinnuhúsn.
11
812 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin