**Opið hús mánudaginn 29. júní milli kl. 17:00 og 17:30**
Björt og vel skipulögð íbúð á sjöttu hæð. Mikið og fallegt útsýni er frá íbúðinni. Tvennar svalir. Stutt er í leik- og grunnskóla verslanir og ýmsa aðra þjónustu. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 97,4m².
Íbúðin skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Sér geymsla í kjallara. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Nánari lýsing: Anddyri: Fataskápar, parket á gólfi.
Eldhús: Eldri innrétting ágætis vinnu og skápapláss, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél. Korkflísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, parket á gólfi, útsýni til suðurs og vesturs er úr stofu. Gengið er út á rúmgóðar svalir úr stofu.
Svefnherbergi I: Fataskápar, parket á gólfi, gengið út á svalir. Útsýni til suðurs.
Svefnherbergi II: Fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Hvít eldri innrétting, baðkar, flísar á gólfi og upp á veggi að hluta. Gluggi á baðinu.
Þvottaherbergi: Sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum, er í sameign á hæðinni.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara.
Hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð í sameign.
Búið er að endurnýja glugga að hluta og hluta af ofnum íbúðar.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is