Borg fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 3 herb. 162,2 fermetra íbúð á tveimur hæðum á 5. og efstu hæð með aukinni lofthæð í góðu fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri við Skúlagötu 40A auk sér bílastæðis í upphitaðri bílageymslu. Heildarflatamál íbúðar er 139,4 fm og flatarmál bílastæðis er 29,8 fm skv skráningu í þjóðskrá. Íbúðin er á tveimur hæðum, útgengi er út á svalir frá báðum hæðum og er meðal annars garðskáli með útgengi út á svalir á efri hæðinni. Sameign er öll til fyrirmyndar, lyfta og nýlegur mynddyrasími er í húsinu. Starfandi húsvörður er í húsinu. Góð aðkoma er frá Barónsstíg og næg bílastæði. Frábær staðsetning í 101 Reykjavík þar sem stutt er í margþætta þjónust og allt það er miðbærinn hefur upp á að bjóða. Falleg eign sem vert er að skoða.
Bókið skoðun og fáið allar frekari upplýsingar hjá Heiðu í síma 779-1929 og á netfanginu heida@fastborg.is
Lýsing eignar:
Neðri hæð:
Forstofa / gangur: parketlagður og með fataskápum.
Svefnherbergi: parketlagt með góðum skápum.
Baðherbergi: Hálkufrír gólfdúkur á gólfi, flísar á veggjum, góð innrétting.
Eldhús: með parketi á gólfi, hvítri eldhúsinnréttingu, Rúmgóður borðkrókur með útgengi út á svalir
Þvottaherbergi / búr: innaf eldhúsi með hillum og vaski, hálkufrír gólfdúkur á gólfi.
Efri hæð:
Stofa: rúmgóð, parketlögð og björt með mikil lofthæð.
Hjónaherbergi: parket á gólfi, rúmgott og bjart með góðum skápum.
Baðherbergi: Hálkufrír gólfdúkur á gólfi, flísar á veggjum, innrétting, sturta.
Garðskáli: flísar á gólfi og útgengi út á svalir
Sér bílastæði: Í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Sameiginleg bílaþvottaaðstaða er í bílageymslu.
Sameign: er mjög snyrtileg með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Geymsla: í bílageymslu inn af stæði með lökkuðu gólfi.
Íbúðin á hlutdeild í sameign í húsinu nr. 40 en þar er m.a. að finna heitan pott, gufubað og samkomusal. Einnig á íbúðin hlutdeild í húsvarðaríbúð í húsinu nr. 40 sem er í útleigu og rennur leiguandvirðið í hússjóð.
Íbúðin er ætluð fyrir 60 ára og eldri.
FASTEIGNAMAT NÆSTA ÁRS VERÐUR KR. 90.950.000,-
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.