Virkilega falleg og vel skipulögð 91,2 fm, þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Eskiás 6, Garðabæ (merkt201). Stór vinnueyja í eldhúsi, tvö rúmgóð svefnherbergi og geymsla innan íbúðarinnar. Sér inngangur í allar íbúðir í Eskiás. Baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Góðar svalir sem snúa í vestur. Fallegt parket á allri íbúðinni og baðherbergi flísalagt.Hafðu samband og bókaðu skoðun: Gunnar Bergmann Jónsson - Löggiltur fasteignasali - sími 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isNánari lýsing:
Eskiás 6 er 29 íbúða bygging sem var byggð árið 2024. Allar íbúðir með sérinngangi og allir fermetrar innan íbúðarinnar. Eina sameign hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Húsið er einangrað að utan og klætt viðhaldsfríum stein - og álplötum. Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð. Fallegt parket á öllum gólfum íbúðarinnar, flísar á beðherbergi. Innréttingar í eldhúsi frá NOBILIA/GKS með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Eldhústæki, blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool. Stór vinnueyja í eldhúsi með góðri vinnuaðstöðu og gott skápapláss í eldhúsi. Fataskápar í báðum svefnherbergjum og fataskápar í forstofu frá GKS. Næg bílastæði á lóðinni og búið að tengja rafbílahleðslukerfi sem er aðgengilegt öllum íbúum.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.