Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu einstaka og afar rúmgóða eign við Víðimel 64 í Reykjavík. Um er að ræða mjög áhugaverða og fjölnota eign í virðulegu steinsteyptu húsi á eftirsóttum stað Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin skiptist í rúmgóða 6 herbergja sérhæð á 2. hæð, 3ja herbergja kjallaraíbúð með sérinngangi og rúmgóðan skúr/geymslurými ásamt viðbótarherbergi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Íbúðin á 2. hæð er björt og vel skipulögð 6 herbergja sérhæð með samliggjandi stofu og borðstofu, eldhúsi, baðherbergi, fjórum svefnherbergjum og útgengi á svalir til suðurs. Í kjallara er rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og möguleiki er á að bæta fjórða herberginu við. Skúr/geymsla sem býður upp á fjölbreytta nýtingu, svo sem vinnuaðstöðu eða aukaíbúð. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í síma: 856-5858 eða email: margret@fstorg.is. *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***
Eignin býður upp á óvenju mikla nýtingarmöguleika og hentar sérstaklega vel stórfjölskyldum, foreldrum og uppkomnum börnum sem vilja kaupa saman, fjölskyldu sem vill hafa sér rými fyrir eldri börn eða kaupendum sem vilja nýta hluta eignarinnar til útleigu, vinnuaðstöðu eða stúdíórýmis. Frábær staðsetningin á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Um er að ræða rótgróið hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslun og kaffihús. Örstutt er í Melabúðina, Vesturbæjarlaug, Háskóla Íslands, miðborgina og falleg útivistarsvæði við Ægisíðu og á Seltjarnarnesi. Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 266,5 m². - Þar af er íbúð á 2. hæð 126,6 m², íbúð í kjallara 107,8 m² og geymsla/skúr 32,1 m².Nánari lýsing og skipting eignahluta:- Íbúð á 2. hæð - 126,6 m²Forstofa/Hol er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Holið tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og góðum hornglugga og suður og austurs. Stofan er samliggjandi borðstofu.
Borðstofa er rúmgóð opin við stofu með parketi á gólfi og glugga til suðvestur.
Eldhús er inn af holi með glugga í norð-austur. Viðar innrétting með góðu skápaplássi og flísum á milli skápa. Korkflísar á gólfi.
Baðherbergi er með baðplötum á vegg, hvítri innréttingu, spegla skáp, upphengdu salerni og sturtuklefa. Vinyldúkur á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskápum.
Herbergi I er með parketi á gólfi og útgengt svalir til suð-austurs.
Herbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi III er forstofuherbergi inn af gangi með parketi á gólfi.
Sameign er snyrtileg með flísum við útidyrahurð og stiginn milli hæða er teppalagður.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallar ásamt sér geymslu eignar.
Lóð er sameiginleg með gróinn garð til suðurs.
- Íbúð í kjallara - 91,8 m²
Forstofa, gengið er inn um sérinngang í forstofu og forstofugang með vínyldúk á gólfi.
Stofa er rúmgóð og nýtist vel sem borðstofa og setustofa. Harðparket á gólfi.
Herbergi I er inn af stofu með góðum hornglugga, fataskáp og harðparket á gólfi. Innangengt í herbergi bæði frá stofu og gangi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, eldavél og vaski, með vínyldúk á gólfi.
Herbergi II er bjart með fataskáp og vínyldúk á gólfi.
Herbergi III / aukarými er innangent frá bílskúr en möguleiki að breyta til baka. Vatns- og frárennslislangir til staðar.
Baðherbergi er með sturtuklefa, salerni, handlaug á vegg og vínylparket á gólfi.
Þvotta- og geymslurými er innan kjallaraíbúðar með vínylparket á gólfi.
- Herbergi / vinnurými - í kjallara, um 16 m²Herbergi sem tengist skúr/geymslu. Rýmið nýtist vel sem vinnuherbergi, skrifstofa, svefnherbergi eða aukageymsla. Hægt væri að bæta því við kjallaraíbúð sem þriðja svefnherbergið.
- Geymsla / bílskúr - 32,1 m²Rúmgott skráð geymslurými/skúr, 32,1 m² að stærð. Rýmið nýtist vel sem geymsla, verkstæði eða vinnuaðstaða og möguleiki á að útbúa aukaíbúð.
Framkvæmdir og viðhald á undanförnum árum, skv. seljanda: 1980 - Þak var endurnýjað að mestu þegar risið var endurbyggt og stækkað (hækkað).
1987 - Raflagnir endurýjaðar í íbúð á 2. hæð og kjallara.
2013 - Gluggar og gler endurnýjað að hluta.
2014 - Dyrasími endurnýjaður.
2020 - Teppi í stigagangi endurnýjað.
2021 - Frárennslislagnir fóðraðar með epoxyefni alveg út í götu. Ofnalagnir í kjallara endurnýjaðar að hluta.
2021 - Baðherbergi á 2. hæð endurnýjað að mestu. Nýjar baðplötur á vegg, vínylflísar, upphengt salerni, handlaug, sturtubotn ásamt sturtugler og blöndunartæki.
2022 - Drenlögn lögð meðfram öllu húsinu og við bílskúr.
2022 - Kjallari: Gólfefni á stofu, geymslu og baðherbergi endurnýjuð ásamt nýju klósetti.
2023 - Viðgerð á hitagrind, skipt um þrýstijafnara og frárennslisstofn frá risi niður í kjallara endurnýjaður.
2025 - Sía sett á kaldavatnsinntak.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.