Glæsileg 106,5 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (Efstu) við Eyrarholt 5 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 99,7 fm og sér geymsla á jarðhæð 6,8 fm, samtals 106,5 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Þrjú svefnherbergi, þ.m.t. hjónaherbergið, skápar í öllum. Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkar með sturtu yfir, granítflísar á gólfi og veggjum að hluta. Eldhús með hvítri innréttingu, ofn, helluborð og vifta, innbyggð uppþvottavél. Rúmgóð og björt stofa með útg. á suður-svalir. Þvottahús er sér innan íbúðarinnar með innréttingu og vask.
Sér geymsla á jarðhæð og snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Framkvæmdir undanfarin ár skv. eigendum:- Skipt um gólfefni 2023
- Skipt um hurðir í íbúð 2023
- Íbúðin máluð að innan 2023
- Nýr ofn í annað barnaherbergið 2025
- Nýr fataskápur í hjónaherbergið 2026
- Bætt við auka fataskáp í anddyri og nýjar hurðir á eldri skáp þar 2026
- Ný þvottahús innrétting 2025
- Nýtt sturtugler og blöndunartæki á baðherbergi 2023
- Nýjar rúllugardínur frá Álnabæ í stofu 2024
- Sameiginleg hleðslustöð sett við útistæði 2025
- Skipt um innihurðir frá stigagangi inn í íbúðir 2024
- Nýr dyrasími með myndavél 2026
Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is