DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

Fellsmúli 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
58.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
Verð
57.000.000 kr.
Fermetraverð
971.039 kr./m2
Brunabótamat
31.850.000 kr.
Byggt 1964
2. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
2015496
Húsgerð
Fjölbýlishús

Fasteignasalan Borg kynnir bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð við Fellsmúla 9 í Reykjavík. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða íbúð með stórri og bjartri stofu, suðursvölum með fallegu útsýni. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.  Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.  Fjölbýlið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár. 

Íbúðin er vel skipulögð með opnu og björtu alrými þar sem eldhús og stofa mynda skemmtilega heild. Veggur á milli eldhúss og stofu.   Útgengi er úr stofu á góðar suðursvalir sem njóta mikillar birtu og fallegs útsýnis. 

Komið er inn í hol sem tengir saman alla hluta íbúðarinnar. Baðherbergið er með eldri innréttingu,  baðkari með sturtuaðstöðu. Eldhús er með góðu skápa- og vinnuplássi og er opið að stofu að hluta. Stofa og borðstofa eru samliggjandi í rúmgóðu björtu alrými með útgengi út á suðursvalir. Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskáp. Í sameign er sérmerkt geymsla auk sameiginlegs þvottahúss og hjóla- og vagnageymslu.

Húsið hefur fengið talsvert viðhald sl. ár. Meðal framkvæmda má nefna klæðningu á þremur hliðum hússins, múrviðgerðir og málun á norðurhlið, endurnýjun glugga á suður- og vestur hlið, þar á meðal allra glugga í íbúðinni, auk þess sem skólplagnir, dren og þakjárn hafa verið endurnýjuð. Um er að ræða vel viðhaldið fjölbýlishús á eftirsóttum stað í Reykjavík.

Endurbætur
Helstu framkvæmdir:
2025: Ný útidyrahurð í kjallara sameignar. 
2024: Stigagangur málaður og skipt um teppi. Kjallari sameignar málaður, bæði veggir og gólf.
2020: Suður- og vesturhlið klæddar. Norðurhlið múrviðgerð og máluð. Þak málað, svalahandrið endurnýjuð og svalagólf lagfærð.
2018: Anddyri endurnýjað ásamt póstkössum og dyrasíma.
2015: Skólplagnir undir húsi og utanhúss endurnýjaðar og lóð drenuð.
2013: Nýir gluggar á suður- og vesturhlið. Gler, póstar og fög endurnýjuð á norðurhlið.
2010: Austurgafl klæddur og gluggar endurnýjaðir í endaíbúðum.
2007: Múrviðgerðir og málun.
2004: Þakjárn endurnýjað.
Nánari lýsing
Forstofa: Parket á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi og hvítlökkuð innrétting með fínu skápaplássi. Opið er á milli eldhúss og stofu sem skapar bjart og notalegt alrými.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengi er á góðar suðursvalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir. Ljós innrétting með fínu skápaplássi, sturta og salerni.

Sameign
Í sameign fylgir íbúðinni 5,1 fm sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sameiginlegt þvottahús er í húsinu þar sem þvottavél og þurrkari eru í eigu húsfélags.
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir:
Börkur Hrafnsson lögmaður & löggiltur fasteignasali  s. 892494,  Borkur@fastborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparskógar 5b íbúð 207
Efsta hæð
Asparskógar 5b íbúð 207
300 Akranes
69,4 m2
Fjölbýlishús
312
857 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 202
Opið hús:25. okt. kl 14:00-14:30
Vorbraut 14 íb 202
210 Garðabær
69,5 m2
Fjölbýlishús
211
1035 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 302
Opið hús:25. okt. kl 14:00-14:30
Vorbraut 14 íb 302
210 Garðabær
70,1 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Krossvellir 4
Hleðslustöð
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Krossvellir 4
Krossvellir 4
301 Akranes
80 m2
Fjölbýlishús
312
746 þ.kr./m2
59.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin