BYR fasteignasala kynnir í einkasölu SÓLBAKKI 2D ÍBÚÐ 102, Neskaupstað. Ný þriggja herbergja íbúð á NEÐRI HÆÐ, TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUSAMNING.
Sér inngangur, *** Möguleiki á að kaupa bílskúr, sem mun rísa beint á móti húsinu*** Smellið hér fyrir staðsetningu.
ÍBÚÐ 102 NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 78,0 m², þar af geymsla 3,6 m² samkvæmt skráningu HMS. Sér inngangur inn í íbúðina.
Skipulag íbúðar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
BYR fasteignasala | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing: Forstofa með þreföldum fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu á steypta verönd með skjólveggjum.
Eldhús með Brúnás innréttingu, eyja. Spanhelluborð á eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum.
Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með, op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð.
Ofan við eyju er tenging fyrir háf og ljós (fylgir ekki).
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, standandi salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Þvottahús er inn af baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar í innréttingu og vaskinnrétting.
Sér geymsla ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.
Allar innréttingar eru frá Brúnas með eikaráferð, efri skápar í eldhúsi eru hvítir að lit. Speglaskápur á baðherbergi er frá Ikea.
Íbúðin er kynnt með rafmagnsofnum. Í forstofu og baðherbergi er rafmagnsgólfhiti.
Veggir íbúðar eru málaðar í hvítum lit.
Hljóðdúkur í loftum, nema á baðherbergi.
Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.
Sólbakki 2 er 11 íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar.
Þak er hefðbundið uppstólað risþak, með báruklæðningu. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.
Gangstétt er hellulögð, gróðurbeð grófjöfnuð án gróðurs, aðrir hlutar lóðar eru þökulagðir. Stétt við inngang að íbúðum á neðri hæð er steypt.
Lóð er sameiginleg 1541,6 m² leigulóð í eigu Fjarðarbyggðar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 253-0530. Sólbakki 2D- 102.Stærð: Íbúð 74.4 m². Geymsla 3.6 m² Samtals 78.0 m².
Brunabótamat: 48.150.000 kr.
Fasteignamat: 30.700.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 36.100.000 kr.
Byggingarár: 2024.
Byggingarefni: Forsteypt.