Valhöll kynnir: bjarta, fallega og vel skipulagða 54,4 fermetra 2ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð (gengið upp tvær hæðir frá bílastæðum) með um 17,5 fm skjólsælum suðursvölum og auk í eftirsóttu fjölbýlishúsi við Flyðrugranda í Reykjavík. Sameiginlegt þvottaherbergi fyrir þrjár íbúðir á hæðinni og sér geymsla í kjallara hússins ásamt sameiginlegu leikherbergi. Sameign hússins er öll til fyrirmyndar.
Eignin er nýmálið og afhendist við undirritun kaupsamnigs.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögm. og lögg. fasteignasala í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.
Lýsing eignar: Forstofa: flísalögð og bæði með fatahengi og skápum. Mosaikflísar á veggjum að hluta í forstofu. Stofa: rúmbóð, björt, parketlögð og með útgengi á um 17,7 fermetra skjólsælar svalir úr stofu. Mjög gott útsýni er úr stofu og af svölum yfir KR svæðið. Eldhús: flísa- og parketlagt með miklum og fallegum hvítum og viðarinnréttingum með mosaikflísum á milli skápa. Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum með rennihurðum. Baðherbergi: rúmgott, flísalagt í gólf og veggi, góðar innréttingar, vegghengt wc með kassa í vegg og rúmgóður flísalagður sturtuklefi með hertu gleri og innbyggðum blöndunartækjum. Innfelld og óbein lýsing. Sameiginlegt þvottaherbergi: er á hæðinni og er það nýtt af þeim þremur íbúðum sem eru á hæðinni. Á 5. hæð hússins (ein hæð upp) er sameiginlegt gufubað með búningsaðstöðu. Sér geymsla: er í kjallara hússins. Sameiginlegt herbergi: er í kjallara hússins, stórt og með útgengi á lóð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: er í kjallara hússins.
Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun skólp- og frárennslislagna sem og lóðar (á vegum lóðarfélags Flyðrugranda 2-20). Sérstök innheimta hefur staðið yfir vegna þeirra fá því í nóvember 2023 og er hún fyrirhuguð til nóvember 2027 (33.000 kr. á mánuði). Verklok vegna lóðar 12-20 er áætlað 2026 og vegna 2-10 árið 2027.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði KR, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu.
Frá árinu 2023 hefur lóðarfélag innheimt í sérsakan framkvæmdarsjóð vegna yfirstandandi og fyrirhugaðra lagnaframkvæmda (skólp og frárennslislagna) og endurnýjun á lóðinni. Búið að samþykkja tilboð í verkið og er verkið yfirstandandi fyrir hús nr. 12-20 nú sumarið 2026 og í framhaldinu fyrir hús nr. 10-12 sumarið 2027. Sjá nánar fundagerðir lóðarfélags frá 2023-2026. Sérstök innheimta vegna framkvæmdanna er 33.000 kr. á mánuði frá nóv 2023 - nóv 2027. Á aðalfundi húsfélagsins Flyðrugranda 12-20 árið 2025 kom fram að stjórn er að vinna í gluggaskiptum þar sem þarf. Einnig kom fram að það þarf að laga sorpgeymslutröppur í F16 og skipta um niðurföll á svölum. Sjá aðalfundargerð 06.05.2025. Á aðalfundi 2026 var samþykkt að fara í framkvæmdir á kjallaratröppum í F-16 sem og ytrabyrðisframkvæmdir á F-12. Greitt verður fyrir þessar framkvæmdir úr framkvæmdasjóð húsfélagsins. Rætt var um að hver stigagangur þurfi að huga að endurnýjun rafmagnstöflu þar sem þær séu komnar á tíma. Sjá nánar aðalfundargerð 28.05.2026
Valhöll kynnir: bjarta, fallega og vel skipulagða 54,4 fermetra 2ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð (gengið upp tvær hæðir frá bílastæðum) með um 17,5 fm skjólsælum suðursvölum og auk í eftirsóttu fjölbýlishúsi við Flyðrugranda í Reykjavík. Sameiginlegt þvottaherbergi fyrir þrjár íbúðir á hæðinni og sér geymsla í kjallara hússins ásamt sameiginlegu leikherbergi. Sameign hússins er öll til fyrirmyndar.
Eignin er nýmálið og afhendist við undirritun kaupsamnigs.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögm. og lögg. fasteignasala í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.
Lýsing eignar: Forstofa: flísalögð og bæði með fatahengi og skápum. Mosaikflísar á veggjum að hluta í forstofu. Stofa: rúmbóð, björt, parketlögð og með útgengi á um 17,7 fermetra skjólsælar svalir úr stofu. Mjög gott útsýni er úr stofu og af svölum yfir KR svæðið. Eldhús: flísa- og parketlagt með miklum og fallegum hvítum og viðarinnréttingum með mosaikflísum á milli skápa. Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum með rennihurðum. Baðherbergi: rúmgott, flísalagt í gólf og veggi, góðar innréttingar, vegghengt wc með kassa í vegg og rúmgóður flísalagður sturtuklefi með hertu gleri og innbyggðum blöndunartækjum. Innfelld og óbein lýsing. Sameiginlegt þvottaherbergi: er á hæðinni og er það nýtt af þeim þremur íbúðum sem eru á hæðinni. Á 5. hæð hússins (ein hæð upp) er sameiginlegt gufubað með búningsaðstöðu. Sér geymsla: er í kjallara hússins. Sameiginlegt herbergi: er í kjallara hússins, stórt og með útgengi á lóð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: er í kjallara hússins.
Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun skólp- og frárennslislagna sem og lóðar (á vegum lóðarfélags Flyðrugranda 2-20). Sérstök innheimta hefur staðið yfir vegna þeirra fá því í nóvember 2023 og er hún fyrirhuguð til nóvember 2027 (33.000 kr. á mánuði). Verklok vegna lóðar 12-20 er áætlað 2026 og vegna 2-10 árið 2027.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði KR, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu.
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
11/01/2017
23.200.000 kr.
30.500.000 kr.
50.4 m2
605.158 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.