Fasteignaleitin
Skráð 16. maí 2025
Deila eign
Deila

Lundarbrekka 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
77 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
712.987 kr./m2
Fasteignamat
52.150.000 kr.
Brunabótamat
39.200.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064059
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Endurbætur fyrirhugaðar. Seljandi greiða sinn hluta af framkvæmdum.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Þak yfirfarið og málað 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
4,53
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2024 var rætt að það þyrfti að fara í þakframkvæmdir sem og aðrar minni framkvæmdir. Sjá nánar aðalfundargerð 08.02.2024. Á aðalfundi 2025 var samþykkt samhljóma að fara í endurnýjun á skolplögnum fyrir allt að 25 m.kr. Seljendur munu greiða kostnað af framkvæmdinni í fyrrgreindar viðgerðir á skólplögn skv. tölu sem fram kemur í yfirlýsingu húsfélags að hámarki 600.000.Einnig var stjórn veitt heimild til að leita til pípara og fá skoðun á ofnakerfi hússins. Seljandi hefur nýlokið við að láta yfirfara ofna í sinni eign og var skipt um krana og hitastilli á ofnum í stofu og eldhúsi.  Einnig er stammi kominn á tíma og fara þarf í viðgerðir á honum. Sjá nánar aðalfundargerð 08.02.2024
 
Gallar
Endurnýja þarf plötu framan á baðkari. Hurð í svefnherbergi lokast ekki alveg. Skápur í svefnherbergi er lélegur og vifta í eldhúsi er í slæmu standi. Drippar aðeins úr krana í vaski á baði. 
Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna rúmgóða, vel skipulagða og bjarta 2 herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi frá svalagangi og svölum sem snúa til suðurs á þessum vinsæla stað í austurbæ Kópavogs. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, eldhús, rúmgóð stofa, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Sameiginlegt þvottahús er fyrir hæðina þar sem hver er með sína vél.
Skv. FMR er eignin skráð samtals skráð 77 fm2 þar af er 11,3 fm2 geymsla í kjallara. 


Viðhald húss: 
  • Samþykkt hefur verið að endurnýja skólplagnir, seljendur munu greiða sinn hluta af þeirri framkvæmd sjá nánar í yfirl. húsfélags ( 2025)
  • Ofnar í íbúð yfirfarnir, skipt var um krana og hitastilli á ofnum í stofu og eldhúsi.
  • Hús múrviðgert og málað að utan ( 2017 )
  • Þak yfirfarið og málað ( 2017)
  • Skipt um alla glugga og svalahurð á suðurhlið húss ( 2017)
  • Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð ( 2022)
  • Skyggni sett upp yfir aðalinngang hússins ( 2023 ) 
  • Hleðslustöðvar settar fyrir framan hús ( 2023 )
Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í snyrtilegan stigang upp á fyrstu hæð og inn í íbúð um sérinngang af svalagangi.
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi. 
Stofan er mjög rúmgóð og björt með fallegu útsýni út í bakgarð, góðri borðstofu og útgengi á suðursvalir, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með stórum upprunalegum fataskáp. Gólf er án gólfefna. 
Eldhús er snyrtilegt og vel um gengið með upprunalegri innréttingu. Dúkur á gólfi. Mjög fallegt útsýni til norðurs. 
Baðherbergi er með baðkari, innrétting undir vaski ásamt efri skápum á vegg á móti. Dúkur á gólfi og veggjum.
Geymsla er staðsett í kjallara, stærð hennar er 11, 3 fm2. 

Falleg gróin lóð er bakatil við hús, útgengt er í garðinn frá fyrstu hæð. 
Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/07/201415.750.000 kr.18.800.000 kr.65.9 m2285.280 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
GötuheitiPóstnr.m2Verð
200
59.1
52,9
200
78
54,9

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hamraborg 28
Skoða eignina Hamraborg 28
Hamraborg 28
200 Kópavogur
59.1 m2
Fjölbýlishús
21
895 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Ástún 14
Skoða eignina Ástún 14
Ástún 14
200 Kópavogur
78 m2
Fjölbýlishús
312
704 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin