DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 11. ágúst 2026

Heiðarvegur 5

Atvinnuhúsn.Suðurland/Vestmannaeyjar-900
199.9 m2
1 Herb.
2 Baðherb.
Verð
75.000.000 kr.
Fermetraverð
375.188 kr./m2
Byggt 1956
Sérinng.
Fasteignanúmer
21837212
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Heiðarveg 5 í Vestmannaeyjum sem er 1. hæð í 3 hæða húsi. Eignin er skráð sem atvinnushúsnæði.  Húsið er byggt úr steini árið 1956 og er skráð 199,9 m2.  
Einstakt tækifæri til að eignast rótgróinn veitingastað á frábærum stað í hjarta Vestmannaeyja – með traustan viðskiptavinahóp og mikla framtíðarmöguleika, þar á meðal til frekari uppbyggingar. Veitingastaðurinn hefur verið í samfelldum rekstri frá árinu 1994 og nýtur vinsælda bæði meðal heimamanna og ferðamanna. góð aðsókn er allt árið, en sérstaklega yfir sumarmánuðina þegar staðurinn þjónar fjölbreyttum hópum.
Veitingasalur með leyfi fyrir 50 gesti býður upp á notalegt og aðlaðandi umhverfi, að viðbættu útitjaldi sem er sett upp yfir sumarmánuðina. Salurinn var að stórum hluta endurnýjaður árið 2018, þar sem lagt var í verulegar umbætur, hluta raflagna og ofnalagna, auk þess sem húsgögn og búnaður voru endurnýjuð.  Á árunum 2018–2019 var reist  viðbygging aftan við húsið sem hýsir um 90 fm fullbúið veitingaeldhús, tekið í notkun árið 2019. Eldhúsið er afar vel skipulagt og útbúið nýlegum og góðum tækjum, þar á meðal pizzulínu og grillaðstöðu, ásamt  uppvöskunaraðstöðu, starfsmannaaðstöðu, lager, salerni og stórum kæli. Allt skipulag og búnaður miðast við afkastamikinn rekstur og gerir staðnum kleift að takast á við stór verkefni og mikla ásókn, svo sem í tengslum við stóra viðburði eins og íþróttamót og Þjóðhátíð.
Hér er um að ræða  spennandi fjárfestingartækifæri . Eign með mikla möguleika til frekari þróunar og verðmætasköpunar. 
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
1. hæð: Fullbúin veitingasalur með sæti fyrir 50 manns, ásamt bar, mjög rúmgóðu eldhúsi, geymslu og stórum kæli. Búið er að stækka eldhús og starfsmannaaðstöðu. 
Kjallari: Undir nánast öllu húsinu er geymsla, ekki full lofthæð

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eyjaeignir
www.eyjareignir.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 13
b-nordur-006.jpg
Skoða eignina Sjávarborg 13
Sjávarborg 13
105 Reykjavík
200 m2
Atvinnuhúsn.
12
Fasteignamat 1.066.100.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Ármúli 1
Efsta hæð
20260515_140944.jpg
Skoða eignina Ármúli 1
Ármúli 1
108 Reykjavík
200 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 572.400.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Íshella 4
Skoða eignina Íshella 4
Íshella 4
221 Hafnarfjörður
213.7 m2
Atvinnuhúsn.
1638 þ.kr./m2
350.000.000 kr.
Skoða eignina Borgahella 13
Skoða eignina Borgahella 13
Borgahella 13
221 Hafnarfjörður
42.5 m2
Atvinnuhúsn.
574 þ.kr./m2
24.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin