DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 7. sept. 2026

Frostaskjól 115

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
293.9 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
244.900.000 kr.
Fermetraverð
833.277 kr./m2
Brunabótamat
141.450.000 kr.
Byggt 1983
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20243853
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir glæsilegt og einstaklega vel skipulagt 293,9 fm raðhús á þremur hæðum auk risrýmis og bílskúrs við Frostaskjól 115 í Reykjavík. Eignin hefur verið mikið endurbætt á undanförnum árum og er björt og rúmgóð með góðum svefnherbergjum, fallegum stofum með arni og skjólgóðum garði. 
Húsið hentar sérstaklega vel fyrir stóra fjölskyldu enda býður það upp á rúmgóðar stofur og fjölskyldurými, fjögur svefnherbergi á efri hæð, aukaherbergi og góð rými í kjallara ásamt stóru risrými. Bílskúr fylgir eigninni.

Nánari lýsing
Aðalhæð:
Komið er inn í rúmgóða forstofu sem nýlega hefur verið flísalögð. Þar er gólfhiti og góð HTH fataskápainnrétting. Við hol er endurnýjuð gestasnyrting með flísum, upphengdu salerni, handlaug og handklæðaofni.
Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri HTH innréttingu og kvarts borðplötum. Gott skápa- og vinnupláss er í eldhúsi ásamt tækjaskáp og búrskáp. Tveir innbyggðir ofnar eru í eldhúsi auk innbyggðs ísskáps. Rúmgóð borðstofa er við eldhús.
Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum og fallegum arni sem setur mikinn svip á rýmið. Útgengt er úr stofum á skjólgóða verönd og afgirta lóð.
Fallegt parket er á aðalhæð og sérsmíðaðar innihurðir.
Efri hæð:
Á efri hæð eru fjögur góð svefnherbergi, þar af rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Herbergin eru björt með stórum gluggum og parketi á gólfum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Gólf og hluti veggja eru flísalögð. Þar er sturtubaðkar með glerþili, upphengt salerni og falleg HTH innrétting með kvarts borðplötu. Gólfhiti er á baðherbergi.
Á stigapalli eru viðrunarsvalir.
Ris:
Í risi er stórt og bjart opið rými með þakgluggum. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, t.d. sem vinnuaðstaða, leikherbergi eða herbergi fyrir ungling.
Kjallari:
Í kjallara er stórt herbergi, stórt þvottaherbergi, hol og geymsla. Í þvottaherbergi er góð HTH innrétting með skolvaski.
Bílskúr:
Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Bílskúrshurð sem er rafdrifinn hefur verið endurnýjuð og hleðslustöð fyrir rafbíl er við bílskúr.

Lóðin er gróin og skjólgóð með verönd og góðri aðstöðu til útiveru. Eignin er sérlega vel staðsett innst í rólegum botnlanga þar sem umferð er lítil. Stutt er í leik- og grunnskóla auk fjölbreyttrar þjónustu. Þá er stutt í íþrótta- og frístundastarf KR og tónlistarskóla, sem gerir staðsetninguna sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldur. Frostaskjól 115 er sérlega rúmgóð og vel skipulögð fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
 

Nánari upplýsingar veita fasteignasalarnir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali
s. 788-9030 - ulfar@fastborg.is  
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali.
s. 844 6447 – gunnlaugur@fastborg.is
 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Apalskarð 8 íb. 201
Bílastæði
Apalskarð 8 íb. 201
221 Hafnarfjörður
277.3 m2
Fjölbýlishús
43
274 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 107
Friðjón_vefur (2).jpg
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 107
101 Reykjavík
124.9 m2
Fjölbýlishús
413
973 þ.kr./m2
121.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 102
Friðjón_vefur (1).jpg
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 102
101 Reykjavík
66.7 m2
Fjölbýlishús
211
1045 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 106
Friðjón_vefur.jpg
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 106
101 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
312
1033 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin