Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í sölu: Mjög mikið endurnýjuð og nýstandsett 3ja herbergja íbúð ásamt auka íbúð / tómstundarými á jarðhæð með sér inngangi og góðum bílastæðum á baklóð / mögulegum bílskúrsrétti við Eiríksgötu 19, 101 Reykjavík.
Til sölu er einnig allt húsið við Eiríksgötu 19, tvær íbúðir á 1. og 2. hæð og innréttaðar tvær einingar á jarðhæð með sér inngangi. Möguleiki á góðum leigutekjum.
Skráð stærð íbúðarinnar á 2. hæð er 89,2 fm skv. skráningu hjá HMS, að auki fylgir íbúðinni um 41,2 fm ný standsett studió íbúð (skráð tómstundarými) á jarðhæð. Full lofthæð og sér inngangur ásamt Samkvæmt núverandi skipulagi telja þessar tvær íbúðir um 130,4 fm. Á baklóð eru bílastæði fyrir um 4-6 bíla - samkvæmt upplýsingum frá seljanda er bílskúrsréttur fyrir rúmgóðum skúr.
Endurbætur: Sigrún Einarsdóttir Hönnuður sá um innanhúshönnun og efnisval. Það sem hefur verið endurnýjað má nefna:
Pípulögn, ofnar, skólp og drenlögn út í götu, raflagnir og rafmagnstöflur, innréttingar, öll tæki, hurðar, gólfefni, gler að mestu, þakjárn, rennur ofl.
Íbúð á 2. hæð:
Forstofa / Hol parket á gólfi og stór fataskápur.
Stofa / borðstofa, bjart og sjarmerandi rými með parketi á gólfi, opið við eldhús.
Eldhús falleg innrétting með miklu skápa og borðplássi. Vönduð tæki og innbyggð uppþvottavél, stórir gluggar og parket á gólfi.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og fín, stór fataskápur í öðru herberginu og innaf hinu er rými sem getr nýst sem fataherb, vinnuaðstaða osfv sem og svalir að baklóð.
Baðherbergi er mjög glæsilegt með fallegri innréttingu, vegghendu salerni, einhalla sturtu með gleri, hægt að koma fyrir þvottavél og þurrkrar. Hiti í gólfum.
Vandað vínilparket er á íbúðinni með undirlagi.
Háaloft er yfir íbúðinni - innangengt.
Stúdíóíbúð á jarðhæð (skráð tómstundarými, merkt 0002). Sér inngangur og hiti í gólfum.
Eldhús ný innrétting og innbyggð þottavél.
Stofurými / alrými er fínt og parketlagt.
Baðherbergið er bjart og flísalagt með góðri sturtu, vegghengdu salerni, innréttigu og tengi fyrir þvottavél.
Íbúðin nýtist vel og er öll nýstandsett.
Þetta eru fallegar íbúðir í nýstandsettu húsi á eftirsóttum stað - flottir tekjumöguleikar fyrir fjárfesta.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is