Eignaland og Sigurður Fannar kynna í einkasölu:
Borgarbraut 22 sem er 76.3fm endaraðhús í íbúðakjarna við Minni Borg í Grímnesi.
Fallegur og gróinn garður með sólpalli og heitum potti, 15fm útihús, sem í dag nýtt sem verkstæði og 9fm geymsluhús.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
ATH - Allt innbú getur fylgt með í kaupum.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Herbergi: Forstofuherbergi með flísum á gólfi. Á teikningu er það geymsla/þvottahús en hefur verið breytt í vel heppnað herbergi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir. Snyrtileg innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu. Aðstaða er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Snyrtileg og plássgóð eldhúsinnrétting. Eldhúsið er er hluti af opnu alrými.
Stofa: Björt stofa/sjónvarpsstofa og borðstofa í alrými. Parket á gólfi. Útgengt er úr stofu í sólstofu.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Parket á gólfi.
Sólstofa: Sólstofan er 7.8fm með teppi á gólfi og þaðan er útgengt á sólpall.
Sólpallur: Stór og skjólsæll pallur sem snýr í suður. Á pallinum er heitur pottur sem er knúinn með rafmagni.
Garður: Gróinn, skjólsæll og fallegur garður. Að framan er steypt bílaplan með mynstri og ruslatunnuskýli, ásamt snyrtilegri girðingu.
Í bakgarði er
15 fm útihús sem í dag er nýtt sem verkstæði en má breyta og nýta sem gestahús, sem dæmi, hitaveita og rafmagn er í þessu útihúsi. Í bakgarði er einnig
geymsluhús 9fm sem er með rafmagni.
Um byggðakjarnann: Borg er vaxandi byggðarkjarni þar er fjölþætt þjónusta fyrir heimamenn og ferðamenn, skóli, leikskóli. Leik og íþróttaaðstaða, félagsheimili og sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is