Miklaborg kynnir: Til sölu eða leigu fallegt einbýlishús við Kárastíg í miðbæ Reykjavíkur, rétt við Skólavörðustíg. Húsið er töluvert mikið endurnýjað. Eignin er á tveimur hæðum auk kjallara. Frágengin lóð með sólpalli fyrir framan hús og stórum þaksvölum bakatil. Hellulagt bílastæði fyrir framan hús með hitalögn. Einstök staðsetning, frábært fjölskylduheimili. Eignin hefur verið í skammtíma útleigu en það leyfi verður ekki endurnýjað.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Nánari lýsing: Á jarðhæðinni er forstofa, forstofuherbergi, sólskáli, gestasalerni, þvottahús, sjónvarpsherbergi, stórt eldhús, stofa og borðstofa. Hluti af því fyrrnefnda var breytt í móttökurými frá því að eignin var með gistirekstur en slíkt leyfi fylgir ekki með eigninni. Á annarri hæð eru þrjú herbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi með hornbaðkari og sturtu. Útgengt út á þaksvalir bæði úr baðherbergi og einu svefnherbergjanna. Í kjallara hússsins er baðaðstaða með sturtu og saunaklefa. Lagnakjallari er undir öllu húsinu. Húsið var töluvert mikið endurnýjað árið 2005. Kvistur á efri hæð endurbyggður og stækkaður. Allt rafmagn endurnýjað, sett innfelld lýsing að hluta. Gólfhiti í forstofu. Allt gólfefni endurnýjað, gegnheilt eikarparket. Nýtt eldhús og margt fleira. Um er að ræða sérlega skemmtilegt einbýlihús á þessum frábæra stað í miðbæ Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón Rafn í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 07/01/2015 | 54.200.000 kr. | 71.500.000 kr. | 178.1 m2 | 401.459 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 205,7 | 154,9 | ||
110 | 269,6 | 174,9 | ||
101 | 139,3 | 118,9 | ||
101 | 115,4 | 106,9 | ||
101 | 130 | 149,5 | ||
101 | 125,1 | 129,9 |