Miklaborg kynnir:
Bjart og vel skipulagt 295 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 4-6 svefnherbergjum og fallegu útsýni.
NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð: Komið er inn í bjart hol/forstofu. Á hæðinni eru þrjú stór svefnherbergi, stórt baðherbergi með útgengi út í garð ásamt sjónvarpsholi, þvottahúsi og bílskúr. Baðherbergið er með sturtu og fallegri sérsmíðaðri innréttingu. Frá holi er innangengt inn í þvottahús og þaðan áfram inn í bílskúr.
Fallegur stigi með glerhandriði liggur upp á efri hæðina.
Efri hæðin er björt og opin með miklu og fallegu útsýni til vesturs, austurs og norðurs. Eldhúsið er með sérsmíðaðri hvítlakkaðri innréttingu og stórri eldunareyju. Stofan er björt og opin. Útgengt er út á svalir bæði til suðurs og norðurs. Mikil lofthæð er í alrými. Á efri hæðinni er einnig sjónvarpshol/herbergi, baðherbergi með fallegri sérsmíðaðri innréttingu og baðkari, auk hjónaherbergis með góðu fataherbergi.
Lóðin er viðhaldslétt og auðvelt er að breyta báðum sjónvarpsholum í svefnherbergi. Steyptur veggur skapar skjól fyrir sólríka verönd til suðurs og framan við bílskúr er stórt bílastæði með plássi fyrir fjóra bíla.
GÓLFEFNI: Fallegt viðarparket er á flestum gólfum, en flísar eru á votrýmum, í holi og bílskúr.
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUEIGN MEÐ STÓRUM SVEFNHERBERGJUM, SÉRSMÍÐUÐUM INRÉTTINGUM OG SKEMMTILEGU SKIPULAGI
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
201 | 295,4 | 259 | ||
210 | 270 | 229 | ||
210 | 270 | 229 | ||
260 | 305,8 | 110 | ||
200 | 168,4 | 129,5 | ||
210 | 227,6 | 215 |