DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2026

Sogavegur 90

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
188.8 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
167.900.000 kr.
Fermetraverð
889.301 kr./m2
Brunabótamat
92.700.000 kr.
Byggt 1962
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20346331
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða mikið endurnýjað og snyrtilegt 188.8 fm einbýlishús miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu sem að stendur á 440 fm lóð.
Afgirtur skjólgóður suðurgarður með hellulögn að hluta, heitur pottur, sérinngangur er í kjallara og væri hægt að útbúa íbúð þar.
Á síðustu árum er búið að endurnýja eignina töluvert að utan og að innan.
Stutt er í leikskóla, skóla, alla þjónustu og stofnbrautir.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúðarrými er 157 fm merkt 01-01-01 og bílskúr er 31.8 fm merktur 02-01-01, samtals 188.8 fm.
Efri hæð í húsi er eitthvað undir súð og eru þar því einhverjir fullnýtanlegir fermetrar sem að eru ekki í skráðri fermetratölu og ætla má því að fullnýtanlegir fermetrar séu ca. 200 fm.

Nánari upplýsingar um eign og bókun á skoðun:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, aðalbaðherbergi, tvö gestasalerni, þvottaherbergi, geymslur og bílskúr.
Afgirtur garður til suðurs og er hellulögð verönd í garði, heitur pottur (hitaveituskel), inngengt í bílskúr úr garði.

 
Nánari lýsing á eign:
Aðalhæð: Komið er inn í forstofu með fatahengi.
Hol/gangur þaðan sem að gengið er í önnur rými hæðar og þá er stigi uppá efri hæð og niður í kjallara af gangi.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými  og er útgengt í aflokaðan stóran suður-garð úr stofu.
Eldhús er hálfopið inn í stofu og er með snyrtilegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum, gott skápapláss, samfelld eyja er í eldhúsi sem að nýtist sem borðkrókur, góðir veggskápar í eldhúsi, gert er ráð fyrir uppþvottavél og einföldum ísskáp í innréttingu.
Gestasalerni er innaf gangi sem að hefur nýlega verið endurnýjað, upphengt salerni.
Efri hæð: Steyptur stigi úr holi uppá efri hæð, komið er upp í alrými sem að er nýtt sem sjónvarps og vinnuherbergi í dag, en væri hægt að breyta í svefnherbergi.
Hjónaherbergi er nokkuð rúmgott með ágætis fataskápum og er útgengi á suð-austur svalir úr svefnherbergi.
Salerni er á efri hæð með flísum á veggjum að hluta, ágætis innrétting undir vask með skúffum og speglaskápur fyrir ofan vask, upphengt salerni.
Ágætis súðargeymslur á efri hæð.
Kjallari: Steyptur stigi úr holi niður í kjallara, gangur er endilegur eftir kjallara og úr honum er inngengt í tvö góð herbergi. Sérinngangur er í kjallara og við inngang er aflokuð útigeymsla.
Þvottaherbergi og baðherbergi er í enda gangs, flísar á gólfum og vegg að hluta, rúmgóður sturtuklefi og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, ágætis forstofurými og geymslur innaf gangi.
Bílskúr er góður með rafdrifni bílskúrshurð og þá er baðherbergi með sturtu og klósetti í bílskúr.
Gólfefni: Parket, flísar og teppi á gólfum eignar.

Frábær afgirtur suður-garður með hellulagðri verönd að hluta, heitur pottur (hitaveituskel).

Dæmi um þær endurbætur sem að hafa átt sér stað á síðustu árum:
-Hús og bílskúr sprunguviðgert og málað.
-Lóð afgirt með girðingu að stórum hluta fyrir 4 árum.
-Eldhús endurnýjað 2020.
-Nýjar rafmagnstöflur.
-Grjótveggur endurhlaðinn að hluta 2023.
-Flísar og hiti í gólf í forstofu og baðherbergi á miðhæð 2024 og sett upphengt WC. 
-Flísar á efri hæð, baðherbergi endurnýjað, ný hurð og gluggi í svefnherbergi 2024.
-Skipt um gler í glugga í stofu og settir plastbotnlistar á stofuglugga 2026.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörgslundur 17
Heitur pottur
Skoða eignina Hörgslundur 17
Hörgslundur 17
210 Garðabær
179,4 m2
Raðhús
624
891 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Aftanhæð 3
Á einni hæð
Skoða eignina Aftanhæð 3
Aftanhæð 3
210 Garðabær
178,3 m2
Raðhús
513
841 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 6
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72,5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
799 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Kléberg 15, Afar góð staðsetning
Bílskúr
Á einni hæð
Kléberg 15, Afar góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
192,9 m2
Einbýlishús
614
466 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin