Domusnova hefur í einkasölu bjarta og rúmgóða fimm til sex herbergja efri sérhæð í tvíbýli ásamt tvöföldum bílskúr við Skólastíg 32, Stykkishólmi.
-Fyrirhugað fasteignamat næsta árs: kr. 60.200.000.-
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is
Skólastígur 32 er steinhús, að hluta til á tveimur hæðum auk bílskúrs. Í húsinu eru tveir eignarhlutar, hvor á sinni hæð með sérinngang og sér garði. Bílskúr tilheyrir efri hæðinni. Efri hæðin er 207,3 fm. að meðtöldum 53,2 fm. sambyggðum bílskúr. Íbúðarrými eignar er 154,1 fm. og skiptist í anddyri, opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús. Innra skipulagi eignar hefur verið breytt frá því upprunalegu og eru tækifæri til að breyta því enn frekar.
Anddyri: Flísar á gólfi.
Eldhús: Eldri innrétting með efri og neðri skápum. Gert ráð fyrir uppþvottavél og, blástursofn, eb helluborð og vifta fylgja. Gott skápapláss og góð vinnuaðstaða. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart rými frá eldhúsi með stórum gluggum. Parket á gólfi.
Hol: Innangengt er í tvö herbergi og út á litlar suðvestur svalir með góðu útsýni. Flísar á gólfi.
Gangur: Parket á gólfi.
Herbergi I: Flísar á gólfi.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Herbergi III: Stór Fataskápur. Parket á gólfi.
Herbergi III: Stórt herbergi sem áður voru tvö herbergi auðvelt að breyta til baka?. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað að hluta. Innrétting með góðu skápaplássi. Baðkar með sturtugleri. Veggflísar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Tengi f. þvottavél / þurrkara og sturtu. Útgengt út á skjólgóða timburverönd með háum skjólvegg, hlið þar sem gengið er í garð.
Geymsla: Hillur. Parket á gólfi.
Lóðin: Húsið stendur á 771,0 fm. hornlóð með fallegu útsýni. Samkv. eignaskiptayfirlýsingu hefur efri hæðin sérafnot á norðurhluta lóðar. Garðurinn er með margvíslegum trjágróðri og skjólgóðri timburverönd, hellulagður göngustíg að inngangi sem og meðfram húsi að framan að bílskúr. Grasflöt við hlið bílskúrs og fyrir aftan hús að timburveröldinni. Malarborið plan fyrir framan bílskúr með tveimur bílastæðum.
Bílskúr: Tvöfaldur, 53,2 fm. bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum. Önnur er rafdrifin. Bílskúr hefur verið skipt upp í tvö rými sem er opið að hluta. Bílskúrinn býður upp á mikla möguleika.
Undanfarin ár hefur eignin verið endurnýjuð að innan og utan, m.a. skipt um gólfefni að hluta, innihurðir, hluta glugga, baðherbergi endurnýjað, múrviðgerðir á húsi og það málað, drenað, frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar. o.fl. Dúkur á þaki hefur verið yfirfarinn reglulega. Fyrir afhendingu veður farið í að brjóta upp gólfið í einu herberginu þar sem undirstaða og grunnur verður gert upp á nýtt til að laga halla/sig. Nokkrir gluggar sem á eftir að skipta um eru til sem og 15 kassar parket. Til eru teikningar af tveimur útfærslur að breytingum á eigninni. Áhugasömum er bent á að senda á netfangið hrannar@domusnova.is til að fá frekari upplýsingar um eignina.
** LAUS VIÐ KAUPSAMNING **
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða með mikla möguleika fyrir réttan aðila á frábærum stað í Stykkishólmi.
Góð staðsetning og stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, íþróttamiðstöð/sundlaug, verslun verslanir og Hólmgarð.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899-0720 / hrannar@domusnova.is
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is