M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Kirkjubraut 3, 260 Reykjanesbær
Eignin Kirkjubraut 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-3769, birt stærð 162.6 fm.
Tölvert endurnýjað einbýlishús ásamt bílskúr.
Eignin stendur á góðum stað i botngötu, eignarlóð.
* Baðherbergi endurnýjað, hiti í gólfi.
* Eldhús endurnýjað
* Gólfefni og innihurðir endurnýjað.
* Húsið er nýmálað að utan og innan.
Anddyri og hol, parket á gólfi.
Eldhús, parkt á gólfi, hvít innrétting, ofn, helluborð og vifta. Uppvöskunarvél og ísskápur fylgja.
Stofa er rúmgóð, parket á gólfi, útgengt útá lóð.
Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, Walk-in sturta og hvít innrétting við vask, hiti í gólfi.
Þvottaherbergi, flísar á gólfi, innangengt í bílskúr.
Bílskúr, málað gófli, salerni er í bílskúr.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður lgfs. í síma 693-2080 / Þröstur lgfs. 891-9787 eða fermetri@fermetri.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.