Betri Stofan Fasteignasala og Guðbjörg Guðmundsdóttir lögg.fasteignasali kynna til sölu fallega 81 fermetra 3ja herbergja íbúð í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi við Súðavog 9 í Reykjavík. Eigninni fylgir bílastæði í bílageymslu.Vel skipulögð og björt 81 fm, 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með svölum og gluggum í suður og norður. Eignin skiptist í anddyri með góðu skápaplássi, tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum, baðherbergið er með sturtu og fallegri innréttingu frá Voke 3, þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús er opið inn í sérlega rúmgott alrými, þaðan sem gengið er út á suðursvalir. í kjallara er 5,8 fm. sérgeymsla íbúðar ásamt hjóla og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði er í lokaðri bílageymslu
um er að ræða vandaða eign, gólfhiti er í gólfum íbúðar, vandaðar innréttingar sem ná að lofti, innbyggð tæki í eldhúsi.
Bókið Skoðun: Guðbjörg Guðmundsdóttir, sími 899 5533 eða gudbjorg@betristofan.isNánari lýsing:Anddyri: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa/Borðstofa: í rúmgóðu og björtu alrými parket á gólfum, úr alrými er gengið út á góðar suðursvalir.
Eldhús: góð Voke 3 eldhúsinnrétting með innbyggðum kæliskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél Vandaður bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði ásamt spanhelluborði.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg innrétting, í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðir skápar
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, góðir skápar.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 5,8 fermetrar að stærð.
Bílastæði, sérmerkt bílastæði íbúðar er í lokaðri bílageymslu.
Aðkoma að húsinu er góð um hellulagða stétt með snjóbræðslu. Gönguleiðir um fallegan inngarð milli húsana með leiksvæði og blómakerum. Rafmagnsopnun er á hurðum í sameign (dropakerfi). Mynddyrasími er í íbúðum.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veita: Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775 1515, tölvupóstur jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.