M2 Fasteignasala kynnir - Glæsilegt tveggja hæða einbýlishús ásamt aukaíbúð og bílskúr við Suðurtún 1, Reykjanesbæ.
Eignin Suðurtún 1 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 209-0775, birt stærð 201.0 fm.
Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, bílskúr og studio íbúð.
Aðkoman er snyrtileg, stórt hellulagt upphitað bílaplan.
Stór afgirt lóð með verönd.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa með með flísum á gólfi.
Þvottahús er mjög rúmgott með flísum á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, aukainngangur er frá bílaplani inn í þvottahús.
Hol er rúmgott með flísum á gólfi. Stigi upp á efri hæð og Þaðan er útengt út á verönd.
Eldhús hefur verið endurnýjað, grá eldhús innrétting með eyju, ofn í vinnuhæð, helluborð í eyju, innbyggð uppvöskunarvél og innbyggður ísskápur. Flísar eru á gólfi.
Stofa er með flísar á gólfi, mjög rúmgóð með stórum gluggum sem birta upp rýmið.
Hjónaherbergið er með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Aðal baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum, svört innrétting við handlaug, upphengt salerni, baðkar og sturta.
Efri hæð:
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi, veggir flísalagðir að hluta, handlaug og salerni.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi. Hægt að bæta við herbergi á efri hæð.
Bílskúr:
Bílskúrinn er skráður 59fm að stærð og skiptist í bílskúr og stúdíó íbúð.
Íbúðin er með sérinngangi, parketi á gólfi og fataskáp. Í alrými er eldhúsinnrétting með skolvaski og ofni. Baðherbergi með steyptu gólfi, sturtu, upphengt salerni og hvít innrétting við handlaug ásamt spegli með lýsingu.
Göngufæri frá miðbæ Keflavíkur, Heilbrigðisþjónustu Suðurnesja og Myllubakkaskóla.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.