Til leigu 277,8 m² iðnaðar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð við Tangarhöfða 2 í Reykjavík. Laust strax.
277,8 m² iðnaðar- og þjónustuhúsnæði á 1. hæð. Húsnæðið er mest einn salur sem stúkaður er af með léttum veggjum. Auk þess eru til staðar ein skrifstofa/móttaka við inngang og kaffistofa. Innkeyrsludyr til staðar. Lofthæð er um 3,1 m. Gluggar á tvo vegu, út að Tangarhöfða og Bíldshöfða. Gólf er málað og að hluta með flísum.
Malbikað bilaplan er við húsið og sér bílastæði.
Húsaleiga er án vsk.
Möguleiki er á að leigja til viðbótar 289,3 m² iðnaðarhúsnæði í kjallara og 316,7 m² á 2. hæð sem hefur verið nýtt sem gistiaðstaða.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Axel Ólafsson, löggiltan fasteignasala í síma 661-2507, axel@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.