DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2025

SPÁNAREIGNIR - Punta Prima

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
92 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
41.100.000 kr.
Fermetraverð
446.739 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
102020728
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR NOKKRUM SKREFUM FRÁ PUNTA PRIMA STRÖNDINNI*  *GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Vandaðar og fallegar 3ja herb. íbúðir, 2 svefnh. + 2 baðh. í lyftublokk á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Aðeins nokkur skref á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við sjóinn.

NÝTT Í SÖLU.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. Sími 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869

Nánari lýsing:

Um er að ræða glæsilegar 3ja herb. íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýlishúsi rétt við Punta Prima ströndina.  Grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði. Sundlaug, heitur pottur, leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. Örstutt göngufæri á ströndina, þar sem hægt er að busla í sjónum eða setjast niður á skemmtilega veitingastaði. Nautilus og Punta Prima restaurant veitingastaðirnir eru í ca. 2-5 mín göngufæri og ca. 10 mín göngufæri á Asia Kitchen og fleiri góða veitingastaði við Punta Prima hringtorgið.

Íbúðin er rúmgóð með tveimur svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og öðru svefnherbergi og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir. Einnug eru til sölu íbúðir á jarðhæð með sér garði, og hægt er að fara á biðlista eftir íbúðum með þaksvölum þegar næsti áfangi kemur í sölu.
Falleg hönnun og vandaðar innréttingar.

Stæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu.
Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.

Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. 
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard,  glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum: frá 284.000 Evrum. (41.100.000ISK) + kostn. við kaupin.
Á sama stað eru líka til íbúðir með 3 svefnh. + 2 baðh. 
Íbúðirnar eru í byggingu og afhendast í febrúar 2028.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
102020728
Fasteignanúmer
102020728

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 10
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 26
Opið hús:23. mars kl 18:15-18:45
Skoða eignina Berjarimi 26
Berjarimi 26
112 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 11
Opið hús:24. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Kuggavogur 11
Kuggavogur 11
104 Reykjavík
75.4 m2
Fjölbýlishús
211
874 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 19
Opið hús:24. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kuggavogur 19
Kuggavogur 19
104 Reykjavík
61.4 m2
Fjölbýlishús
211
976 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin