DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
100 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
45.500.000 kr.
Fermetraverð
455.000 kr./m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
101130326
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd út frá stofu
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝ HÚS MEÐ EINKASUNDLAUG* *EINUNGIS 18 HÚS Í BOÐI, NÝ KOMIÐ Í SÖLU OG ÞVÍ HÆGT AÐ VELJA BESTU STAÐSETNINGUNA* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH* *SÉRBÝLI Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE* *FRÁBÆRT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð sérbýli á tveimur hæðum í Daya Nueva, fallegum spænskum bæ. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með einkasundlaug. Um 30 mín akstur frá Alicante, 10-20 mín akstur niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb á lokal veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradi (4km), Guardamar (15km), Rojales (6km) og Torrevieja (20km). Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.  Húsið  er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum ásamt gestasnyrtingu. 

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869

Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. Sími 00354 893 2495

Nánari lýsing:
Neðri hæð: gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými ásamt svefnherbergi með sér baðherbergi og auk þess gestasnyrtingu.
Efri hæð: tvö svefnherbergi og eitt bað herbergi. Stórar svalir út frá öðru svefnherberginu.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Örstutt göngufæri í miðbæinn þar sem hægt er koma við hjá bakaranum og fá sér nýbakað brauð, eða kjötkaupmanninum og velja sér góða steik á grillið.
Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu. Skóli og íþróttaaðstaða.

FRÁBÆRT VERÐ, frá: 314.000 Evrur + kostn. (ISK 45.500.000 + kostn. miðað við gengi 1E=145ISK)

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug,
Svæði: Costa Blanca, Daya Nueva,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Móstekkur 59
Bílskúr
Skoða eignina Móstekkur 59
Móstekkur 59
800 Selfoss
194.3 m2
Einbýlishús
514
612 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduhóll 13
Bílskúr
Skoða eignina Hulduhóll 13
Hulduhóll 13
820 Eyrarbakki
180.2 m2
Einbýlishús
413
Fasteignamat 85.600.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Gagnheiði 59
Skoða eignina Gagnheiði 59
Gagnheiði 59
800 Selfoss
172.3 m2
Atvinnuhúsn.
313 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Básahraun 25
Bílskúr
Skoða eignina Básahraun 25
Básahraun 25
815 Þorlákshöfn
189.2 m2
Einbýlishús
514
526 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin