Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Safamýri 69, 108 Reykjavík efri hæð í tvíbýli með 5 svefnherbergjum. Virkilega, rúmgóð og björt hæð með sérinngangi, arni, tvennum svölum, tvö salerni, góðum bílskúr og aukarými í kjallara
Hér er um að ræða sérlega fjölskylduvæna og rúmgóða eign á frábærum og rótgrónum stað í Safamýri. Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er eignin skráð 179 fm, þar af bílskúr 28,2 fm, en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri þar sem kjallari er ekki inni í opinberri fermetratölu. Eignin státar af fimm svefnherbergjum, tveimur samliggjandi stofum, arni, nýlegum gluggum að hluta, bílskúr og góðu rúmi í kjallara. Fallegur og gróinn garður er í kringum húsið.
Sæktu gögnin og söluyfirlit straxNánari lýsingAðkoma og forstofa: Gengið er inn um sérinngang. Flísalagður stigi liggur upp á hæðina. Á gangi fyrir framan íbúðina er sér
gestasalerni ásamt sér
þvottahúsi, bæði rými flísalögð í hólf og gólf.
Stofa og borðstofa: Sérlega bjartar og glæsilegar stofur með parketi. Í stofu er nýr gluggi sem snýr í vestur og fallegur, hlýlegur arinn sem setur mikinn svip á rýmið. Úr borðstofu er útgengt á sólríkar vestursvalir.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með nýjum glugga, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt út á svalir úr hjónaherbegi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með góðu skápaplássi, upphengt salerni og hornbaðkar með sturtuaðstöðu.
Gólfefni: Parket er á öllum alrýmum og herbergjum, en flísar á votrýmum.
Kjallari: Í kjallara eru eitt svefnherbergi og 2 geymslur, sem býður upp á mikla nýtingarmöguleika (geymsla, vinnurými o.fl.) sem telur ekki í opinberum fermetrum eignarinnar.
Bílskúr: 28,2 fm sérstæður bílskúr fylgir eigninni.
Helstu kostirSérinngangur
5 svefnherbergi og 2 rúmgóðar stofur
Þvottahús á hæðinni.
Fallegur arinn í stofu
Suðursvalir, og vestursvalir og nýir vesturgluggar í stofu ásamt nýjum glugga í eldhúsi
Sér þvottahús og gestasalerni
Aukarými í kjallara sem stækkar eignina umtalsvert
Bílskúr (28,2 fm)
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslun og alla helstu þjónustu.
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt sér staðJarðsig vegna ljósleiðarastrengja jafnað í garði árið 2026
Skipt um gler og glugga í eldhúsi árið 2025.
Tréverk / panell og gluggum skipt út í stofu og hjónaherbergi árið 2023.
Bílskúr málaður að innan og settar nýjar innréttingar sumarið 2023.
Rafmagn yfirfarið og skipt um rafmagnstöflu árið 2022.
Þakviðgerð og bílskúrsþak klætt tjörupappa árið 2016.
Gert við sprungur og hús heilmálað árið 2015.
Nánari upplýsingar veita:Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.