Garðatorg eignamiðlun og Haraldur Björnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu:
Hegranes 5 er fallegt og rúmgott mikið endurnýjað 233,9 fm einbýlishús á einni hæð á Arnarnesi í Garðabæ hannað af Pálmari Ólasyni arkitekt.
Skipting eignar: Forstofa, stofa, sólskáli, eldhús, 4 herbergi, þvottahús, baðherbergi og gestasnyrtingu og bílskúr.
Húsið er skráð skv.Þjóðskrá Íslands 233,9 fm og skiptist í 178,2 fm íbúðarrými og 55,7 fm tvöfaldan bílskúrLóðin er eignarlóð og skráð 1288fm og nýtingar hlutfall 35% á einni hæð en þar sem húsið er byggt í smá halla má fara uppí 45% ef byggt er á tveimur hæðum við.
***Fasteignamat ársins 2026 verður 193.900.000kr***Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur í síma 787-8727 eða á haraldur@gardatorg.isNánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi
Eldhús: Er í miðju húsinu með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Birninum.
Svefnherbergin eru fjögur. Þrjú herbergi eru á svefnherbergis gangi. Út frá hjónaherbergi væri tilvalið að taka annan gluggann út og gera hurð með útgengi út á pall en allar lagnir eru til staðar fyrir heitum potti. Fjórða svefnherbergið er rúmgott forstofuherbergi með góðu aðgengi að gestasnyrtingu tilvalið fyrir unglinginn eða Au-pair.
Sólskáli: Er með ljósar flísar á gólfi og arinn, búið er tengja fyrir þannig auðvelt er að leggja golfhita í sólskálann.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, flísalagt með grátóna flísum með innbyggðri sturtu og upphengdu klósetti.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi upphengdu klósetti og handlaug
Þvottahús: tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðu plássi til að setja upp rúmgóða innréttingu. Útgengt að bílaplani.
Bílskúrinn: Er rúmgóður, sérstæður og með góðri geymslu. Möguleiki á að gera aukaíbúð í bílskúr (lagnir til staðar)
Sólpallur: Frá sólskála er gengið út á skjólgóðan og stóran sólpall.
Garðurinn: Er gróinn og skjólgóður.
Húsið er selt án megin gólfefna fyrir utan flísar á baðherbergi og forstofu.
Viðhald:Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum, skólplagnir, neysluvatnslagnir, þak opnað innan frá og allt yfirfarið (einangrun,rakasperra og loftaklæðning) Gólfhiti lagður í allt íbúðarrými með anhýdrít yfir. Allir léttir milliveggir hlaðnir með Lemga hleðslusteinum sem hvorki brenna né mygla. Sérsmíðuð eldhús innrétting frá Birninum. Baðherbergi og gestasnyrting endurnýjuð. Sólpallur framlengdur í kringum sólskála og kringum hús, raflagnir til staðar til að leggja ljós. Nýlegur þakdúkur soðinn á bílskúrsþak og garðskála. Rafmagn í öllu húsinu endurnýjað. Báðar rafmagnstöflur endurnýjaðar ásamt öllum raflögnum og allt nýtt dregið.
Nánari upplýsingar:
Haraldur Björnsson löggiltur fasteignasali í síma 787-8727 eða haraldur@gardatorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.