Háborg fasteignasala og Jórunn lögg. fasteignasali kynna í einkasölu Mánatún 1 íbúð 603.https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/1660696/
Falleg íbúð á 6.hæð í lyftuhúsi og með aðgangsstýrðum bílakjallar. Eignin sem skipar, forstofu, hol, eldhús, stofa/borðstofa með úgengt út á suður svalir, baðherbergi með þvottahúsi innaf og rúmgott og bjart svefnherbergi með góðum skápum. Aðkoma og aðgengi eins og best verður á kosið við húsið.
Eignin er skráð hjá HMS 68,9fm. Íbúðin er skiptist í rúmgott svefnherbergi, stofu-borðstofu, eldhús, baðherbrgi með þvottaaðstöðu, gang og anddyri. Geymsla er 12,8 fm. Eigninni fylgir stæði E-028 í lokuðu bílageymsluhúsi.
Nánari lýsing á íbúðinni:Komið er inn í forstofu sem er með góðum skápum. Á vinstri hönd frá forstofu er rúmgott baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu og þvottahús innaf með góðri vinnuaðstöðu. Elldhúsið er hannað í L með innréttingu frá Brúnás. Eldhúsið er opið inn í stofu/borðstofu en það er bjart og fallegt rými með úgengt út á suður-svair. Hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Flísar á gólfum í votrými, annars er parket á íbúðinni.
Húsið:Húsið er hannað af arkitektastofunni Kannon ehf. Hönnuninhefur vakið athygli fyrir gott fyrirkomulag og nútímalegt útlit í borgarmiðuðu umhverfið.Húsið er með kjallara og 8 íbúðarhæðum. Húsið var byggt árið 2017, með einu anddyri í stigahúsi, 2. lyftur og 34 íbúðum. Það er viðhaldslétt, einangrað að utanverðu og klætt með loftræstri klæðningu, inngangssvæði og margir svalir eru með timburklæðningu á veggjum til að auka hlýlega ásýnd. Rúmgóð, bjöt og snyrtileg sameign. Í kjallara eru geymslur og tengigangur aðbílageymsluhúsi. Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar, stutt í stofnbrautir og allar áttir.
Húsfélag:Í húsinu er virkt húsfélag. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir.
Um er að ræða mjög fína 2ja herberga íbúð á besta stað í borginni, með bílastæði. Sund og íþróttaleikvangur, húsdýra og fjölskyldugarðurinn allt í göngu færi. Einnig mjög stutt í allar helstu stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir Jórunn Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, tölvupóstur jorunn@haborg.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.