DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Gulaþing 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
118.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.800.000 kr.
Fermetraverð
801.352 kr./m2
Fasteignamat
85.100.000 kr.
Brunabótamat
62.500.000 kr.
Mynd af Benedikt Ólafsson
Benedikt Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2298126
Landnúmer
202837
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi að sögn eiganda
Raflagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Frárennslislagnir
Í lagi að sögn eiganda
Gluggar / Gler
í lagi að sögn seljanda
Þak
Í lagi að sögn eiganda.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2 x svalir
Upphitun
sameiginlegur
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Engar að sögn seljanda. 
Gulaþing 6, 203 Kópavogur

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:

Í einkasölu mjög fallega, bjarta og vel skipulagða 118,3 fm 4ra herbergja sérhæð á 2. hæð í í litlu fjórbýli við Gulaþing 6 í Kópavogi. Eignin er með sérinngangi, tvennum rúmgóðum svölum og miklu útsýni yfir Elliðavatn.

Um er að ræða virkilega góða fjölskyldueign á sterkum og eftirsóttum stað þar sem eignir hafa selst vel. Hér fara saman góð birtuskilyrði, gott skipulag, sérinngangur, þrjú svefnherbergi, tvennar svalir og fallegt útsýni yfir Elliðavatn.

Eignin Gulaþing 6, 203 Kópavogur, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Fastanúmer eignar: F2298126.
Ásett verð: 94.800.000 kr.

"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"


"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"


Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: 
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali Sími: 661 7788 Netfang: bo@stofnfasteignasala.is
.
Sölupunktar eignar:

• 118,3 fm 4ra herbergja sérhæð á 2. hæð
• Sérinngangur og rúmgóð forstofa með flísum á gólfi
• Þrjú svefnherbergi með góðum fataskápum sem ná upp í loft
• Tvennar rúmgóðar svalir og mikið útsýni yfir Elliðavatn
• Gólfhiti og skipt hefur verið um hitastýringu í allri eigninni
• Sterk og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, Kórinn og falleg útivistarsvæði


Eignin skiptist í:
Rúmgóða forstofu, gang, stofu / borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu og tvennar svalir.

Nánari lýsing:
Forstofa / inngangur:

Sérinngangur er inn í eignina. Forstofan er rúmgóð með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Forstofa og gangur mynda gott flæði inn í eignina og tengja saman helstu rými hennar.

Stofa / borðstofa:
Björt og rúmgóð stofa með góðum gluggum og fallegu útsýni. Stofa og borðstofa mynda gott alrými með góðri birtu og fallegri tengingu við svalir og útsýni. Útgengt er á svalir frá stofu / alrými.

Eldhús:
Snyrtilegt og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Eldhúsið er í góðri tengingu við stofu og borðstofu sem gefur eigninni opið og gott yfirbragð.

Hjónaherbergi:
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskápum sem ná upp í loft.

Svefnherbergi / barnaherbergi:
Tvö önnur svefnherbergi eru í eigninni. Góðir fataskápar sem ná upp í loft í herbergjunum.

Baðherbergi:
Baðherbergið er snyrtilegt og vel nýtt með baðkari / sturtuaðstöðu, góðri innréttingu og salerni. Baðherbergið er allt flísalagt, bæði gólf og veggir.

Þvottahús / geymsla:
Þvottahús og geymslurými eru innan eignar sem eykur notagildi hennar. Í þvottahúsi eru flísar á gólfi ásamt glugga.

Gólfhiti / frágangur:
Gólfhiti er í íbúðinni og skipt hefur verið um hitastýringu í allri eigninni.

Svalir og útsýni:
Eignin er með tvennum rúmgóðum svölum, annars vegar í suðvestur og hins vegar í norðaustur. Svalirnar eru með plastflísum á gólfi og gefa eigninni gott aukið notagildi. Fallegt og mikið útsýni er úr eigninni og af svölum yfir Elliðavatn og nærliggjandi svæði.

Staðsetning:
Gulaþing er á virkilega góðum og fjölskylduvænum stað í Kópavogi. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun, þjónustu og íþróttasvæðið Kórinn. Þá eru falleg útivistarsvæði í næsta nágrenni, meðal annars við Elliðavatn, sem eykur enn frekar lífsgæði á svæðinu.

Hér er um að ræða bjarta, vel skipulagða og sölulega sterka sérhæð með sérinngangi, þremur svefnherbergjum, tvennum svölum og einu af sterkari útsýnum hverfisins.

Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.

Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.


Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/09/202371.750.000 kr.82.000.000 kr.118.3 m2693.153 kr.
22/10/201430.700.000 kr.34.000.000 kr.118.3 m2287.404 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarstræti 26B 202
Hafnarstræti 26B 202
600 Akureyri
93.5 m2
Fjölbýlishús
412
726 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
851 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugarnesvegur 62
Laugarnesvegur 62
105 Reykjavík
87.3 m2
Fjölbýlishús
312
853 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
VRayCam003.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10a
Hafnarbraut 10a
200 Kópavogur
66.1 m2
Fjölbýlishús
211
1134 þ.kr./m2
74.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin