DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2026

Núpahraun 21

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
138.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.000.000 kr.
Fermetraverð
541.516 kr./m2
Brunabótamat
76.770.000 kr.
Byggt 2023
Sérinng.
Fasteignanúmer
25153921
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu Núpahraun 21, 815 Þorlákshöfn. Fimm herbergja raðhús með bílskúr og steyptu bifreiðaplani í nýlegu hverfi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, hol, fjögur svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi og bílskúr.

Birt stærð samkv. fasteignaskrá er 138,50 fm, þar af er stærð bílskúrs 27,10 fm


Eignin skiptis eftirfarandi
Forstofa flísalögð með stórum fataskáp og innangengt inn í bílskúr
Stofa björt og rúmgóð í opnu rými við eldhús. Útgengt úr stofu út í garð að framanverðu
Eldhús er rúmgott með fallegri hvítri innréttingu og upphengdum skápum. Innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Bakarofni í vinnuhæð.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu, fataskápur í tveimur þeirra.
Baðherbergi er einstaklega smekklegt með upphengdu salerni, upphengdum vaskaskáp og spegli, sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús með vaski, skápaeiningu og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara
Hol (sjónvarpshol) við svefnherbergin
Innangengt í bílskúr úr forstofu.
Gólfefni, parket úr Birgisson er á alrými og herbergjum, hurðar einnig úr Birgisson, flísar á forstofu þvottahúsi og baðherbergi.
Innréttingar eru frá GKS.
Bifreiðaplan 
er steypt og með steyptu ruslatunnuskýli.

Þorlákshöfn er í mikilli uppbyggingu og frábær staður til að búa á. 
Stutt er í alla þjónustu, þar á meðal skóla, leikskóla og verslun. 

Virkilega falleg eign sem vert er að skoða.


Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Prima fasteignasala ehf.
http://www.primafasteignir.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpahraun 21
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Núpahraun 21
Núpahraun 21
815 Þorlákshöfn
138,5 m2
Raðhús
514
542 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Stakkholt 4A
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Stakkholt 4A
Stakkholt 4A
105 Reykjavík
129,8 m2
Fjölbýlishús
413
936 þ.kr./m2
121.500.000 kr.
Skoða eignina Árskógar 3A
60 ára og eldri
Skoða eignina Árskógar 3A
Árskógar 3A
109 Reykjavík
119,3 m2
Fjölbýlishús
312
762 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (103)
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
v1 103.jpg
Mýrargata 41 (103)
101 Reykjavík
126,4 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
112.050.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin