DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skráð 19. feb. 2026

Klappakór 1e

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
88.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
902.825 kr./m2
Fasteignamat
71.600.000 kr.
Brunabótamat
52.745.000 kr.
Mynd af Óskar Már Alfreðsson
Óskar Már Alfreðsson
Geymsla 4m2
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2282478
Landnúmer
196831
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir með útsýni til suðurs
Upphitun
Hitaveita/Gólfhiti.
Inngangur
Sérinngangur
Prima fasteignasala kynnir í sölu vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi við Klappakór 1e í Kópavogi. Um er að ræða barnvænt svæði og er stórkostlegt útsýni frá íbúðinni. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir með eign.

 Nýlegt eldhús í opnu rými
 Stofa/borðstofa með suður svalir
 Sérmerkt stæði og geymsla í bílageymslu
 Góð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla

Nánari lýsing: 
Sérinngangur af svölum.
Forstofa flísalögð með fataskáp.
Hol / gangur. 
Svefnherbergi (I) rúmgott með fataskáp.
Þvottaherbergi / geymsla. flísar á gólfi.
Svefnherbergi (II) rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi flísalagt með baðkari/sturtu.
Svefnherbergi/Skrifstofa (III) nýtt í dag sem skrifstofa með gólfsíðum glugga. (skráð geymsla á teikningum)
Eldhús í opnu rými. Eldhúsið er nýlegt.
Stofa og borðstofa með útgengi á suður svalir.
Stæði í bílageymslu..
Geymsla í bílageymslu.
Sameiginlegar hjóla og vagnageymslur.
Vel rekið húsfélag er starfandi í húsunum.
Lóð er með hellulögðum stéttum með snjóbræðslu. Leiktæki eru staðsett á sameiginlegri lóð.
Skráðar stærðir eru íbúð 84,5 fm og geymsla 4 fm 

Um er að ræða afar fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Kórahverfi í Kópavogi. Stutt í alla verslun og þjónustu, skóla og leikskóla, göngu- og hjólaleiðir m.a. við náttúruperlur eins og Heiðmörk og Elliðavatn. Golfvöllur GKG í næsta nágrenni og íþróttasvæðið Kórinn. 

Nánari upplýsingar veitir.
Óskar Már Alfreðsson löggiltur fasteignasali / s.6158200 / oskar@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/09/201834.500.000 kr.44.200.000 kr.88.5 m2499.435 kr.
19/10/201628.600.000 kr.35.000.000 kr.88.5 m2395.480 kr.
29/06/200720.771.000 kr.26.600.000 kr.88.5 m2300.564 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
0.4 m2
Fasteignanúmer
2282478
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
15
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.905.000 kr.
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2282478
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.140.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 1- 0206
Bílastæði
Asparlaut 1- 0206
230 Reykjanesbær
154.9 m2
Fjölbýlishús
423
580 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 4
Bílskúr
Skoða eignina Skúlagata 4
Skúlagata 4
340 Stykkishólmur
383.9 m2
Einbýlishús
1439
208 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Klettamói 6
Skoða eignina Klettamói 6
Klettamói 6
815 Þorlákshöfn
100.4 m2
Fjölbýlishús
413
652 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 65
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Canva- framnes65.jpg
Skoða eignina Framnesvegur 65
Framnesvegur 65
101 Reykjavík
79.4 m2
Fjölbýlishús
312
817 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin