Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Asparskógar 18 - íbúð 211

Nýbygging • FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
76.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
875.654 kr./m2
Fasteignamat
54.650.000 kr.
Brunabótamat
45.000.000 kr.
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2519875
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
11
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, 9,9 fm
Lóð
2,15
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Björt og falleg 3ja herbergja horníbúð á 2. hæð í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR

** BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS **
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf., s. 6914591 // 
sjofn@domusnova.is
Erla Dís Guðmundsdóttir, s. 698-7088 // erladis@domusnova.is

Domusnova Borgarnesi hefur til sölu 2ja - 5 herbergja íbúðir við Asparskóga 18 á Akranesi. Þriðji og síðasti hluti byggingar er nú kominn í sölu og eru tilbúnar til afhendingar 15 glæsilegar eignir, stærðir frá 56,8 - 130,1 fm. 

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af eru 14 hleðslustæði. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 

Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Ýtið hér til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 211 er skráð 76,4 fm. Sérinngangur er inn í eignina, svalir í suðvestur og bílastæði í bílakjallara. Innan eignar er anddyri, stofa eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og sér skápur á gangi fyrir þvottavél og þurrkara.
* 3ja herbergja horníbúð á 2. hæð (efstu) með sérinngang 
* Stærð 76,4 fm.
* Svalir í suðvestur, stærð 9,9 fm.
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla
* Bílastæði B-25 í bílakjallara 


Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur frá GKS Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð brún Nobilia innrétting með hvítum efri skápum frá GKS innréttingar. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgegnt út á suðvestur svalir. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi I: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur frá GKS Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi. Þvottaaðstaða er í sér skáp í miðrými eignar.
Svalir: Rúmgóðar 9,9 fm. svalir í suðvesturátt. Útiljós á svölum. Vatnsvarinn tengill.

Bílageymsla: er í kjallara hússins. Aðkoma bifreiða um akstursramp og aðkoma gangandi frá sitthvorum enda stigahúss og um gönguhurð við ramp. Upphituð með lágu hitastigi/frostlaus. Vélræn loftræstingu og sjálfvirkt springler kerfi. Sjálfvirkur hurðaropnari er á hurð. Ein fjarstýring fylgir hverju bílastæði. LED lýsing í lofti
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: 
Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar.
Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)



Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Erla Dís Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali / s. 698-7088 // erladis@domusnova.is
Skrifstofa Domusnova / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2519875
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
B-
Númer eignar
25
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun
DN ehf
https://domusnova.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 401
Bílastæði
Asparskógar 18 - íbúð 401
300 Akranes
71.7 m2
Fjölbýlishús
312
933 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Þjóðbraut 3
Bílastæði
Skoða eignina Þjóðbraut 3
Þjóðbraut 3
300 Akranes
85.5 m2
Fjölbýlishús
312
760 þ.kr./m2
64.990.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 101
Bílastæði
Asparskógar 18 - íbúð 101
300 Akranes
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 310
Bílastæði
Asparskógar 18 - íbúð 310
300 Akranes
75.5 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin