Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynna bjarta og mikið endurnýjaða sérhæð með innréttuðum bílskúr í fjórbýli á góðum stað í Reykjavík. Eignin er á 2. hæð og deilir inngangi með risíbúð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni og 32,2 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem aukaíbúð/gestarými.
Eignin er 161,8 m², þar af er búðin 129,6 m² og bílskúrinn 32,2 m².
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á afar fallegan máta.
Nánari upplýsingar veitir: Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali elka@fstorg.is / sími : 863-8813
Nánari lýsing: Gengið er inn um snyrtilegan sameiginlegan inngang með risíbúð, teppi á stiga.
Komið er inná gang með miklu skápaplássi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og góðum borðkrók. Inn af eldhúsi er búr/þvottahús með rennihurð.
Árið 2021 var eldhús endurnýjað, þar á meðal innrétting, eldavél, helluborð, háfur, uppþvottavél, vaskur og blöndunartæki, auk þess sem flísalagt var á milli skápa.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Opnað hefur verið á milli eldhúss og stofu.
Svefnherbergi eru þrjú, öll mjög rúmgóð og björt. Útgengi er úr tveimur herbergjum á góðar suðvestursvalir.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi, fallegri innréttingu, handklæðaofni og "walk-in" sturtu. Gólfhiti á baðherbergi.
Árið 2021 var gólf flotað og nýtt parket lagt á alla íbúðina, nýjar innihurðir og fataskápar, nýjar rennihurðir á forstofuskáp.
Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús með þurrkaðstöðu og sérgeymsla sem er ekki inn í fermetratölu eignar.
Bílskúr hefur verið innréttaður sem aukaíbúð/gestarými með baðherbergi og sturtu.
HELSTU FRAMKVÆMDIR (2021–2025)* Nýjar neysluvatnslagnir og ofnalagnir í gólf ásamt því að skipt var um alla ofna
* Gólfhiti og endurnýjun á baðherbergi
* Lagnir fyrir þvottavél inn af eldhúsi
* Rafmagn endurnýjað í íbúð, ný rafmagnstafla
* Netsnúrur lagðar í tvö herbergi, stofu og bílskúr
* Skipt um flesta glugga og svalahurðir (2021 og 2024)
* Gólf flotað og nýtt parket lagt, nýjar innihurðir og fataskápar, settar rennihurðir á forstofuskáp
* Bílskúr uppfærður með nýju parketi og innréttingum - Hleðslustöð sett upp árið 2025. Þakpappi á bílskúr endurnýjaður árið 2022
Vel staðsett eign í hinu vinsæla Vogahverfi Reykjavíkur, beint á móti Menntaskólanum við Sund, þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttir og útivist.Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.