Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Langamýri 16

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
161.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
433.086 kr./m2
Fasteignamat
75.750.000 kr.
Brunabótamat
77.850.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2008
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2315943
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Gólfhiti og ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús Fasteignasala kynna í einkasölu:
4ra herb. 161,4fm endaraðhús á tveimur hæðum innst í botnlangagötu á frábærum stað á Selfossi.  
Garður aflokaður með hundheldri skjólgirðingu, heitur pottur og geymsluskúr.  Leikskólinn Árbær í göngufæri.

Komið er inn í flísalagða forstofu, og nett forstofusalerni við hlið hennar.  Inn til vinstri er eldhús og borðstofa, gengt úr borðstofu út á hellulagða stétt framan við húsið og gluggi að gólfi.  Í eldhúsi góð aðstaða til matargerðar, hvít eldhúsinnrétting með innbyggðri AEG uppþvottavél sem fylgir við sölu, Siemens spanhelluborði, háfi yfir því og bakarofni undir, og mikið skápapláss.  Traustur tréstigi upp á efri hæð hússins við gafl þess og kósý rými bak við hann og gengt út í bakgarð. Látlaus stofan einnig þar innaf með glugga að gólfi.  Á jarðhæð er einnig rúmgott þvottahús með geymsluhillum og þvottasnúrum.  Harðparket á öllum gólfum á báðum hæðum nema votrýmum.  Á efri hæð eru svo þrjú góð svefnherbergi og aðal baðherbergi hússins, upptekin loft í öllum þeim rýmum.  Hjónaherbergið stærst herbergjanna,- góðir fataskápar þar og gengt út á suðursvalir.  Geymsla eða fataherbergi inn af öðru hinna herbergjanna og einnig gengt út á svalir til norðurs. Baðherbergið rúmgott með upphengdu klósetti, sturtu með glerhurðum, stórri handlaug á skúffuskáp, háum handklæðaskáp og tengimöguleikum fyrir þvottavél eða baðkar. Dúkur á gólfi þess. Gólfhiti á neðri hæð hússins en ofnakerfi uppi.   Húsið er timburhús, klætt að utan með hvítu og rauðu bárujárni og dökkri viðarklæðningu í bland sem setur fallegan blæ á útlitið, gluggar og hurðir úr tré.  Garðurinn er girtur með hundheldri skjólgirðingu og heitur pottur í skjólsælu horni hans. Hellulagðar stéttar við útganga beggja vegna hússins og geymsluskúr við bílastæðið.
Áhugaverð eign með karakter.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar um eignina.
S. 896 9565   loftur@husfasteign.is

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/07/202146.950.000 kr.53.400.000 kr.161.4 m2330.855 kr.
08/06/201834.050.000 kr.39.000.000 kr.161.4 m2241.635 kr.
14/06/201627.350.000 kr.29.000.000 kr.161.4 m2179.677 kr.
08/04/201515.100.000 kr.10.000.000 kr.161.4 m261.957 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Björkurstekkur 7
Bílskúr
Björkurstekkur 7
800 Selfoss
176.3 m2
Parhús
524
396 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Björkurstekkur 5
Bílskúr
Björkurstekkur 5
800 Selfoss
176.3 m2
Parhús
524
396 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina GRASHAGI 24
Bílskúr
Skoða eignina GRASHAGI 24
Grashagi 24
800 Selfoss
167.5 m2
Einbýlishús
413
417 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Gauksrimi 28
Bílskúr
Skoða eignina Gauksrimi 28
Gauksrimi 28
800 Selfoss
127.7 m2
Raðhús
412
532 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin