Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg.fasteignasali og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna Grensásvegur 1A, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega eign á 7.hæð, stærð 139,5 fm, á efstu hæð í 108 Reykjavík. Útgengt úr hjónasvítu og stofu á þaksvalir sem eru 18,6 fm eftir endilangri íbúðinni. Eignnig er 2. aukaherbergi, sjónvarpshol, 2.baðherbergi, glæsilegar stofur sem eru opnar inn í eldhúsið, eldhúsið með eyju sem hægt er að sitja við.
Birt stærð eignar er 139,5 fm samkvæmt HMS, þar af er 9,7 fm geymsla. Ath: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. Afhending við kaupsamning.
Nýr valkostur í fjármögnun fasteignaBRÚ 20%. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% -25% af kaupverði. Kynntu þér málið hér: FasteignaBRU.isDeilibílar í boði: Deilibílar bæði fólksbílar og sendibílar, eru hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir eru aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Einfalt app í boði fyrir aðgengi að sendibíl og fólksbílum. Aðgengi verður að 183 bílastæðum í samnýttri bílageymslu á þremur hæðum neðanjarðar. Einnig eru hrað-hleðslustöðvar í bílakjallara.
Helstu kostir lúxus íbúðar eru:- búðin er upphituð með gólfhita (hitastýring í íbúðunum),
- gólfsíðir gluggar í íbúðinni,
- íbúðin glæsilega innréttuð með dökkum eikar lituðum forstofuskápum,
- eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum,
- inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir í 260 cm.
- Stærstur hluti innveggja Lemga léttsteypusteinum.
- Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193,
- Á baði og þvottaherbergjum eru gólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm.
- Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
- Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti.
Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur. Úr forstofu er komið inn í hol en þar blasir við sjónvarpsherbergi Við hliðina á sjónvarpsherberginu í holi er hjónaherbergið, glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og með útgeni út á rúmgóðar svalir 18,6f m að stærð einnig er baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu innbyggðum blöndunartækjum. Sér þvottahús innan íbúðar með góðri vinnuaðstöðu. Barnaherbergin eru rúmgóð og björt með góðum fataskápum. Alrýmið er rúmgott og bjart opið eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og glæsilegar rúmgóðar stofur með útgengi á svalir 18.6 fm að stærð.Eigninni fylgir geymsla í kjallara stærð 9,7 fm. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958 og Kristín Rós lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is. Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1A eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. En um helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á heimasíðu
www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.
Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum.
Um er að ræða glæsilega íbúð með þaksvölum með útsýni, hjónasvíta með baðherbergi, tvö önnur herbergi bæði með skápum, auka baðherbergi, glæsilegar bjartar og rúmgóðar stofur, með útgengi út á stórar svalir, eldhúsið er fallega innréttað og með eyju sem hægt er að sitja við. Sér þvottahús innan íbúðar. Gott birtuflæði, gólfhiti, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning við Laugardalinn, miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu.Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is, Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@haborg.is, Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000, thorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir lgf. í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupendur standa straum af.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.