Fasteignaleitin
Skráð 6. sept. 2025
Deila eign
Deila

Álftabyggð 7

SumarhúsSuðurland/Flúðir-846
107.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
678.771 kr./m2
Fasteignamat
46.350.000 kr.
Brunabótamat
56.250.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2000
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2257877
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Svalir
Nei, en það er útgengi út um svaladyr á verönd
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Gott og vel staðsett sumarhús við Álftabyggð 7, 846 Flúðir

Sumarhúsið er á eftirsóttum stað rétt við golfvöllinn (Selsvöllur) í Hrunamannahreppi við Flúðir. Einfalt er að aka á golfbíl yfir á golfvöllinn þar sem golfvöllur er í innan við 1,0 km. fjarlægð frá bústaðnum.

Sumarhúsið er 67,6  fm. með anddyri og þvottahús/búr, þrjú herbergi, baðherbergi og opið alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi. Verönd umlykur allt húsið að sunnan og vestanverðu við húsið og gestahúsið. Á veröndinni er heitur pottur og skjólveggur, geymslupláss er undir veröndinni. Flott, upplýst og góð aðkoma að húsinu. Lóðin er 3.430 fm. að stærð, vel hirt, glæsileg og gróðursæl með stórum og fallegum trjám allt í kring um lóðina. 

Auk þess er 39,8 fm. sér gestahús, fullbúið að utan en tilbúið til innréttingar að innan. Allir ofnar eru komnir þar inn ásamt tengistykkjum, en allir ofnar eru en ótengdir. Auðvelt er líka að tengja salerni, stúturinn þar er kominn upp. 

Samtals stærð á sumarhúsinu og gestahúsinu er 107,4 fm.

Húsið er mjög hlýlegt með parket á gólfi í svefnherbergjum og inn í alrými. Yfirbyggð kojurúm eru í tveimur af þrem herbergjunum. Fallegur panil með listum er upp meðfram öllum veggjum og panill í öllu loftinu, öll smíðavinna er mjög vönduð og flott.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Smelltu á linkinn til að skoða sumarhúsið í 3D


Vel hefur verið hugsað um eignina frá fyrstu tíð. Sömu eigendur frá upphafi. Sumarhúsið var byggt árið 2000 og gestahúsið árið 2009. Seljandi er lærður smiður og húsgagnasmiður. 

Stór hluti af innbúi getur fylgt með húsinu. Sumt sem seljandi mun þó taka með sér. 

Sumarhúsabyggðin er vel staðsett þar sem stutt er í verslun, veitingastaði og ýmsa þjónustu á Flúðum. Heitt og kalt vatn er tengt á veitukerfi Flúða (Hrunamannahrepps).

Lóðin er leigulóð frá Efra-Seli. 50 ára lóðarsamningur frá 01.09.1998 til 01.09.2048. Ársleiga ( lóðarleiga) er kr. 26.521 miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 231,0 stig þann 01.11.1998 ( lóðarleiga er c.a 90.000 kr. í dag. ) 

Leiðarlýsing: Ekið er frá Flúðum að golfvellinum ( Selsvöllur ) og beygt til hægri við skilti merkt Álftabyggð áður en komið er að beygjunni sem leiðir að golfvellinum. 

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2005
39.8 m2
Fasteignanúmer
2257877
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.950.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarbraut 5
Opið hús:20. sept. kl 14:00-16:00
Skoða eignina Hlíðarbraut 5
Hlíðarbraut 5
806 Selfoss
98.5 m2
Sumarhús
413
759 þ.kr./m2
74.800.000 kr.
Skoða eignina Birkibraut 15
Skoða eignina Birkibraut 15
Birkibraut 15
805 Selfoss
98.3 m2
Sumarhús
413
751 þ.kr./m2
73.800.000 kr.
Skoða eignina Dvergahraun 21
3D Sýn
Skoða eignina Dvergahraun 21
Dvergahraun 21
805 Selfoss
102.6 m2
Sumarhús
524
733 þ.kr./m2
75.200.000 kr.
Skoða eignina B-Gata 12
Skoða eignina B-Gata 12
B-gata 12
805 Selfoss
112.7 m2
Sumarhús
312
620 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin