Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir 3ja herbergja 92,8 fermetra íbúð með sérinngangi á jarðhæð í góðu fjölbýli byggðu 1999 við Breiðavík 8 í Reykjavík. Íbúðin er með afgirtum sérafnotareiti til suðurs inn í bakgarð hússins. Þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla á jarðhæð sem er 6,7 fermetrar að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Lóðin er snyrtileg með afgirtri tyrfðri baklóð og sameiginlegum bílastæðum fyrir framan hús. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað í Víkurhverfi í Reykjavík þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, menntaskóla, íþróttasvæði, golfvöll, Egilshöll auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Glæsilegar hjóla- og gönguleiðir í nágrenni við náttúruna, fjöruna og sjóinn.
Lýsing eignar: Sérinngangur. Forstofa: Er rúmgóð, flísalögð og með skápum. Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi. Eldhús: Með parketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Bakaraofn, keramik helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og gluggi til suðurs. Góður borðkrókur í eldhúsi. Stofa: Með parketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og útgengi á sérafnotaflöt/verönd. Sérafnotaflötur: Er afgirtur, viðarverönd að hluta og tyrfður að hluta. Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs/vesturs. Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skáp og gluggum til suðurs/norðurs. Baðherbergi: Með flísum á gólfi og innréttingu við vask.Flísalögð sturta og upphengt salerni. Þvottaherbergi: Flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og útloftun.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett á jarðhæð hússins. Málað gólf og hjólasnagar. Sér geymsla: Er staðsett á jarðhæð sem er 6,7 fermetrar að stærð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.