Miklaborg kynnir: Fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á frábærum stað í Þingholtunum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina á hlið hússins, inngangurinn er sameiginlegur með tveimur öðrum íbúðum.
Komið er inn í alrými sem er bæði stofa og eldhús með stórum gluggum.
Skipting íbúðarinnar er eftirfarandi: Stofa og eldhús eru í rúmgóðu björtu rými, hvít eldhúsinnrétting með tækjum, ágætis skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Svefnherbergi er stúkað af og væri auðvelt að loka þar á milli, gott pláss með útgengi á vestur svalir sem snúa út í garð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, þar er upphengt salerni og sturta. Sér þvottahús er í íbúðinni. Sér geymsla í sameign hússins fylgir íbúðinni.
Nánari upplýsingar veiti Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 05/02/2019 | 27.650.000 kr. | 29.500.000 kr. | 43 m2 | 686.046 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 88,7 | 67,5 | ||
110 | 183 | 112,9 | ||
101 | 93,8 | 74,9 | ||
112 | 118,8 | 94,9 | ||
270 | 104 | 79,9 | ||
810 | Tilboð |