Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í fjölskylduvænu hverfi á Borg í Grímsnesi.- Rólegt og fjölskylduvænt umhverfi í sveitafélagi sem hefur verið í mikilli uppbyggingu.
- Stutt gönguleið er í leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöð, auk þess sem aðeins eru um 15 mínútna akstur á Selfoss þar sem alla helstu þjónustu er að finna.
- Hentar vel fyrstu kaupendum, litlum fjölskyldum eða þeim sem leita að notalegu heimili í fallegu sveitaumhverfi.
- Eignin hefur nýlega fengið ýmsar uppfærslur.
Nánari upplýsingar veitir:Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar er 70,30m² samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými ásamt útgengi út á pall og rúmgóðan garð.
Nánari lýsing:Forstofa: Parketlögð forstofa með fallegum sérsmíðuðum fataskáp sem býður upp á gott geymslupláss.
Eldhús: Nýlega uppfærð eldhúsinnrétting sem hefur verið filmuð. Gott skápapláss og vinnuaðstaða. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu sem skapar skemmtilegt flæði í rýminu.
Stofa og borðstofa: Mjög bjart og rúmgott alrými með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn og falleg sérsmíðuð innbyggð hilla setur skemmtilegan svip á rýmið. Útgengt er út á pall og rúmgóðan garð þar sem bláberjalyng er að finna.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum sérsmíðuðum fataskáp með innbyggðu rými fyrir sjónvarp.
Svefnherbergi: Bjart svefnherbergi sem nýtist einnig vel sem barnaherbergi eða vinnuherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu. Innrétting fyrir þvottavél býður upp á gott geymslupláss.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.