Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Kiðagil 5 íbúð 102 - Björt og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð með rúmgóðum sólpalli og heitum potti á góðum stað í Giljahverfi - stærð 78,2 m²Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu sem hægt er að nýta sem þriðja svefnherbergi.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofan er björt og með ljósu harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðan vestur timbur pall með heitum potti.
Eldhúsið er með dökkri innréttingu með flísum á gólfi og milli skápa. Í innréttingu er innnbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergið er með ljósum flísum á gólfi og við baðkar, hvítri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og sturtugleri, vegghengdu wc, handklæðaofni og opnanlegum glugga.
Þvottahús/geymsla er rúmgott rými með ljósu harðparketi á gólfi og opnanlegum glugga. Möguleiki er á að nýta rýmið sem þriðja svefnherbergi.
Sólpallurinn er rúmgóður timburpallur með heitum potti og góðu útsýni til vesturs.
Geymsluaðstaða og hjóla- og vagnageymsla er í sameiginlegri útigeymslu fyrir húsin í Kiðagili 1-3-5-7. Einnig hefur íbúðin afnot af geymslulofti í risi sem er sameiginlegt með íbúðum í húsinu Kiðagil 5.
Annað:- Skipt var um gólfefni á alrými og svefnherbergjum 2025
- Húsið var múrviðgert og málað árið 2020.
- Rúmgóður timbur sólpallur með hitaveitupotti.
- Tvö svefnherbergi og möguleiki á að nýta þvottahús/geymslu sem þriðja svefnherbergi.
- Gott sameiginlegt geymslupláss fylgir eigninni
- Barnvænt hverfi þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla
- Góð staðsetning í Giljahverfi.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.