DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Þorraholt 13B (108)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
76.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
981.651 kr./m2
Fasteignamat
32.250.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
Jarðhæð af 5
Garður
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541227
Landnúmer
234799
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 3ja herbergja íbúð við Þorraholt 13B í Garðabæ með 13,0 fermetra sérafnotareiti til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 13B í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu á jarðhæð. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.


Íbúð 108: Er glæsileg 76,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með 13,0 fermetra sérafnotareiti til suðurs. Góð geymsla fylgir íbúðinni sem er 9,4 fermetrar að stærð. Afhending er í Október 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými sem er opið við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Útgengi á sérafnotareit til suðurs frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is


ATH: Ljósmyndir og tölvumyndir endurspegla ekki innra skipulag þessarar íbúðar og eru einungis til þess að átta sig á innréttingum, tækjum o.s.frv.

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 15
Opið hús:30. ágúst kl 12:00-12:30
1.jpeg
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
878 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Strikið 4 Jónshús
60 ára og eldri
Strikið 4 Jónshús
210 Garðabær
95.2 m2
Fjölbýlishús
211
871 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
IMG_5095.jpg
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
Flyðrugrandi 10
107 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:31. ágúst kl 17:00-17:45
501 steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
95.1 m2
Fjölbýlishús
413
945 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin