Fasteignaleitin
Opið hús:28. ágúst kl 16:00-17:00
Skráð 25. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Sniðgata 2

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
125 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
719.200 kr./m2
Fasteignamat
69.150.000 kr.
Brunabótamat
69.250.000 kr.
Byggt 1935
Þvottahús
Garður
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2150646
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Gott svo vitað sé
Raflagnir
Gott svo vitað sé
Frárennslislagnir
Gott svo vitað sé
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott svo vitað sé
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Gólfhiti og Ofnar
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kasa fasteignir 461-2010.

Sniðgata 2. Glæsilegt og mikið endurbyggt 4-5 herbegja 125 fm einbýlishús með fallegum garði og útsýni í hjarta miðbæjar Akureyrar.

Einstakt einbýlishús byggt 1935 í Funkis stíl og endurbyggt frá grunni 2004–2006. Húsið er á þremur pöllum með björtum og opnum rýmum, gólfhita, sérsmíðuðum innréttingum og gegnheilu eikarparketi. Nýtt þak, allar lagnir endurnýjaðar útí götu, gluggar stækkaðir og útgengi opnað út í garð. Fallegur sólpallur, mósaíklagður gosbrunnur, garðskúr og steypt stétt með útsýni yfir pollinn. Húsið hefur verið vel við haldið og er tilbúið fyrir nýja eigendur sem kunna að meta stíl, gæði og sögu.

Húsið er á þremur pöllum og skiptist í:
Aðalhæð: Stofa og samtengt eldhús með hvítri innréttingu og forstofa. Gegnheilt eikarparket á allri hæðinni og hiti í gólfum. Gengið út á sólpall úr stofu/eldhúsi.

Efri hæð: Rúmgott svefnherbergi með aukinni lofthæð og góðum skápum. Skrifstofa/bókaherbergi, sem auðveldlega má loka og breyta í fjórða svefnherbergi. Gegnheilt eikarparket á herbergjum. Rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtuklefa,vegghengdu salerni og gólfhita. 

Neðri hæð: Flísar á gólfum og gólfhiti. Tvö rúmgóð svefnherbergi og þvottahús.   Sér inngangur er á neðri hæð.  Parketlagður stigi tengir saman pallana þrjá.
Garður: Sólríkur og skjólsæll garður með sléttri grasflöt umlykur húsið og í honum gosbrunnur lagður mósaík flísum og sólpallur, Steypt stétt er fyrir framan forstofu á neðri hæð, þar er hægt að njóta morgunsólarinnar og útsýnis yfir pollinn.

Húsið er allt hið glæsilegasta og hentar hvort heldur sem er barnafjölskyldum sem þurfa allt að fjögur svefnherbergi og vilja eiga fallegan skjólsælan garð sem og eða orlofshús í hjarta miðbæjar Akureyrar. Nánari lýsing á endubyggingu húsins er að finna hjá Kasa Fasteignir, en sjón er sögu ríkari.   

- Örstutt í miðbæ Akureyrar.
- Fallegur gróinn garður með garðhúsi.
- Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026: 75.450.000.-
- Teikningum hér í auglýsingunni var breytt af fasteignasala til að sýna núverandi skipulag eignar.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða á kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Kasa Fasteignir
http://www.kasafasteignir.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gilsbakkavegur 1a
Gilsbakkavegur 1a
600 Akureyri
148.8 m2
Einbýlishús
424
591 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Austurbrú 14 - 405
Bílastæði
Austurbrú 14 - 405
600 Akureyri
96.1 m2
Fjölbýlishús
21
905 þ.kr./m2
87.000.000 kr.
Skoða eignina Dvergaholt 5 - 301
Bílastæði
Dvergaholt 5 - 301
603 Akureyri
119.5 m2
Fjölbýlishús
413
778 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Þursaholt 5 íbúð 103
Bílastæði
Þursaholt 5 íbúð 103
603 Akureyri
104.4 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
87.944.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin