DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 29. apríl 2026

Goðheimar 8

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
99.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.500.000 kr.
Fermetraverð
871.098 kr./m2
Fasteignamat
80.650.000 kr.
Brunabótamat
55.850.000 kr.
Mynd af Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Lögg. fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021231
Landnúmer
105218
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
18,7
Inngangur
Sameiginlegur
Þórunn Pálsdóttir lgf Háborg kynna  glæsilega nýlega uppgerða 4ra herbergja íbúð á efstu  hæð á þessum vinsæla stað.   Frábært skipulag. Mikið og fallegt útsýni yfir Laugardalinn og alveg að Snæfellsjökli og víðar.  Þrjú svefnherbergi, góðar bjartar stofur og svalir til suðausturs.  Opið fallegt eldhús og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf, í síma 773-6000, tölvupóstur thorunn@haborg.is.


Sameiginlegur inngangur er með hæðinni fyrir neðan, en stigahúsið er bjart og skemmtilegt.
Komið er í glæsilegt alrými sem samanstendur af holi, bjartri og fallegri stofu og  opnu eldhúsi.   Holið er með góðum skápum en þaðan er gengið er út á suðaustursvalir.
Eldhúsið er stílhreint með hvítum innréttingum en það var endurnýjað árið 2021 og  það sama ár voru innihurðar, gólfefni og skápar á gangi og í hjónaherbergi endurnýjaðir.
Glæsilegt útsýni er úr alrýminu til suður og vesturs, en einnig til austurs úr eldhúsgugga þar sem Úlfarsfellið nýtur sín vel.
Fallegt harðparket er á öllum gólfum nema á baðgólfi þar sem eru parketflísar, en baðherbergið var glæsilega endurnýjað árið 2020 með gólfhita, baðkeri með sturtu í og tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt handklæðaofni.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Gangur með góðum skápum liggur úr alrýminu, en þar er baðherbergið ásamt þremur svefnherbergjum.   Fyrst á vinstri hönd er gott barnaherbergi, næst er minna barnaherbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa og loks hjónaherbergið er rúmgott með gluggum á tvo vegu með fallegu útsýni og góðu skápaplássi.  
Skv. samþykktum teikningum var eldhúsið lokað, en veggur milli stofu og eldhúss var tekinn þegar eldhúsið var endurnýjað.  Þá eru 39,9 fm svalir til norðvesturs út úr stofu skv. samþykktum teikningum frá árinu 2003, en þær hafa ekki verið byggðar.
Tvær sérgeymslur íbúðarinnar eru í kjallara.  Önnur mjög rúmgóð með glugga og hin undir stiga. Birt flatarmál  er 99,3 fm en Íbúðin sjálf er 88,3 fm og geymslurnar samtals 11 fm auk súðarfermetra.  Sameiginlegt þvottahús hússins er einnig í kjallara ásamt því að þvottaaðstaða er á baðherbergi.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað að utan og ber helst að nefna að skipt var um þak 2013 og þ.m.t. sperrur, þakpappa, rennnur og járn, en þakið var síðan málað árið 2022.
Árið  2013 var skipt  um gler í öllum gluggum íbúðarinnar  nema svalahurð og glugga í holi  þar sem gler og gluggar voru endurnýjaðir árið 2022, en baðgluggi árið 2020.
í mars 2018 voru frárennslislagnir fóðraðar og niðurföll í kjallara endurnýjuð.  Árið 2020 var múrviðgert og steinað á norður og austurhlið.

Sérlega heillandi og fallega endurnýjuð útsýnisíbúð á þessu vinsæla stað þar sem stutt er í alla þjónustu í Skeifunni og Glæsibæ, skóla og útivistarparadísina í Laugardalnum.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf, í síma 773-6000, tölvupóstur thorunn@haborg.is











 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/10/202047.550.000 kr.25.150.000 kr.99.3 m2253.272 kr.Nei
28/06/201842.700.000 kr.42.000.000 kr.99.3 m2422.960 kr.
03/08/200720.590.000 kr.26.300.000 kr.99.3 m2264.853 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftamýri 6
Diddi_vefur (1).jpg
Skoða eignina Álftamýri 6
Álftamýri 6
108 Reykjavík
139.9 m2
Fjölbýlishús
413
600 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7 íb101
Skoða eignina Eskiás 7 íb101
Eskiás 7 íb101
210 Garðabær
81 m2
Fjölbýlishús
413
986 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 16
Bílastæði
Skoða eignina Strandvegur 16
Strandvegur 16
210 Garðabær
121.5 m2
Fjölbýlishús
32
819 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Tunguvegur 62
Skoða eignina Tunguvegur 62
Tunguvegur 62
108 Reykjavík
106.9 m2
Raðhús
413
794 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin