Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir -Einstaklega falleg 3 herbergja endaíbúð á fyrstu hæð, með svalir til suð- vesturs.
Frábærlega staðsett eign í hjarta Laugardalsins.
Lýsing eignar:Forstofa með fataskáp
Eldhús með góðri innréttingu, spanhelluborði, bakaraofni, búrskáp, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti.
Stofa/ borðstofa er í sameiginlegu björtu opnu rými með parketi á gólfi, útgengt er á svalir úr borðstofu.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 með parketi á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á mjög smekklegan hátt. - Flísalagt með baðkari, fallegri handlaug, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gólfhiti er á baðherbergi.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla í kjallara hússins.
Einnig fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi og þurrkherbergi,
hjóla & vagnageymslu. Sjá staðsetninguÍbúðin hefur verið mikið endurnýjuð2024 - Ný eldhúsinnrétting og öll tæki endurnýjuð.
2024 - Auka rafmagnstöflu bætt við í eldhús
2024 - Baðherbergi flísalagt, nýtt baðkar, handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og gólfhiti.
2024 - Nýtt parket lagt á gólf íbúðar - að baðherbergi undanskildu
2024 - Rofar og tenglar endurnýjaðir.
Húsið sjálft hefur líka verið vel viðhaldið2023 - Gluggar yfirfarnir - skipt var um glugga í eldhúsi á íbúð
2022 - Múrviðgerðir að utanverðu og húsið málað
2021 - Frárennslislagnir fóðraðar undir húsi og út í götu
2019 - Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð
2013 - Þakjárn hússins endurnýjað og pappi
Vel staðsett eign í þessu skemmtilega og fjölskylduvæna hverfi, þar sem stutt að sækja ýmsa þjónustu og afþreyingu.
Nánari upplýsingar veitirSigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099 sissu@litlafasteignasalan.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.