Jason Kristinn, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Glæsilegt 440 fm einbýlishús á útsýnisstað í Auðnukór 9 í Kópavogi.Myndband með hugmyndum unnið úr ljósmyndum af húsinu.
Húsið stendur á einstakri lóð innst í botnlanga við stórt opið grænt svæði ofan við golfvöll GKG. Afstaða hússins er góð, innra skipulag frábært og hönnun falleg. Engu hefur verið til sparað við efnisval. Húsið er einangrað að utan og klætt og því viðhaldslétt.
Nánari lýsing:
Efri hæð
Anddyri: Gengið er inn á efri hæðina í anddyri með skápum.
Eldhús: Er með fallegri hvítlakkaðri innréttingu, eldunareyju og kvartsstein á borðum. Miele tæki. Vínkælir. Eldhús er sérlega rúmgott og er opið inn í stórar stofur.
Stofur: Rúmgóðar og bjartar stofur. Úr stofu er stórglæsilegt útsýni. Hægt að ganga sunnan megin og vestan megin út á svalir. Gasarinn í stofu. Gólfsíðir gluggar með óheftu útsýni til vesturs.
Baðherbergi er með sturtu.
Svefnherbergi sem er 14,3 fm innanmál.
Þvottahús: rúmgott þvottahús og gott auka svefnherbergi.
Vinnukrókur er einnig á hæðinni.
Bílskúr: Rúmgóður 60,3 fermetrar að stærð og vel útbúinn. Tvískiptur annars vegar með miklu skápaplássi og þar er hurð til hliðar við anddyri.
Neðri hæð
Gengið er niður steyptan stiga á neðri hæð og komið í hol.
Sjónvarpsherbergi sem er um 30 fermetrar.
Frístundarherbergi: Hluti af því rými er ekki skráð inn í birta fermetra og er húsið því stærra en skráning segir til um.
Tvö rúmgóð svefnherbergi sem bæði eru yfir 14 fermetrar.
Aðalsvefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi og stóru baðherbergi með baðkari og "walk in" sturtu
Útgengt er frá baðherberginu út í yfirbyggðan
heitan pott og rúmgóða gufu. Svalalokun til að ganga út í garð.
Gólfhiti er í húsinu og hljóðkerf. Stillanlegt með hússtjórnarkerfi.
Stórt steypt plan er fyrir utan húsið og meðfram húsinu allan hringinn.
Hiti er í planinu sunnan megin við húsið. Norðan megin við húsið er pláss fyrir bílastæði eða hjólhýsi.
Húsið er skráð í fasteignaskrá tæplega 400 fm en neðri hæð er stærri en skráning segir til um.
Einstök staðsetning, fallegt útsýni.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is