Fasteignaleitin
Skráð 6. júní 2025
Deila eign
Deila

Kambsvegur 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
83.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.500.000 kr.
Fermetraverð
853.222 kr./m2
Fasteignamat
55.000.000 kr.
Brunabótamat
39.750.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2017832
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Yfirfarið 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Kambsvegur 16 Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega og mikið endurnýjaða 83,8 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum til suðvesturs við Kambsveg í Reykjavík. Íbúðin er virkilega vel skipulögð og björt með gluggum á þrjá vegu. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu (sem rúmar vel setustofu og borðstofu), baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Sérmerkt stæði er á framlóð hússins.

Um er að ræða virkilega fallegt fjölbýli, byggt árið 1980 (nýlegra en flest húsin í hverfinu), sem hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. var húsið múrviðgert og málað árið 2019 ásamt því að þak var yfirfarið. Sama ár var skipt um glugga á baðherbergi, stigagangur málaður og skipt um teppi. Árið 2020 var skipulagi íbúðar breytt og eldhús endurnýjað og opnað inn í stofu. Einnig var skipt um alla rafmagnstengla og rofa, lagt nýtt parket/gólflista, íbúð heilspörsluð, tréverk í gluggum lagað og lakkað og stormjárn endurnýjuð. Árið 2022 var baðherbergið endurnýjað að ölly leyti, þvottaherbergi og skrifstofurými innréttað.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Kambsveg í Laugardalnum þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, Laugardalslaug, verslun og þjónustu (Glæsibæ, Skeifuna, Laugalæk og Borgartún) og alla afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.


Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð með harðparket á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til vesturs og norðurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til vesturs/suðvesturs inn í bakgarð hússins. 
Eldhús: Var endurnýjað árið 2020 á fallegan máta. Harðparket á gólfi og falleg hvít sprautulökkuð eldhúsinnrétting með eyju. Gorenje stál bakaraofn, Samsung spansuðu helluborð, innb. uppþvottavél, innb. kæliskápur með frysti og eyjuháfur.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2022. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili og falleg innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi til austurs.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til austurs með útsýni að Esjunni og Úlfarsfelli.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi og glugga til austurs með útsýni að Esjunni og Úlfarsfelli.
Þvottaherbergi: Var innréttað árið 2022. Harðparket á gólfi og gott vinnupláss. Upphækkun undir þvottavél/þurrkara, vinnuborð og þvottasnúrur.
Skrifstofurými/vinnurými: Var standsett árið 2022. Gott vinnuborð og gluggi til vesturs.

Geymsla: Er staðsett á jarðhæð og er 7,6 fermetrar.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð. Snyrtileg með máluðu gólfi.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/04/202347.450.000 kr.65.000.000 kr.83.8 m2775.656 kr.
17/12/201934.550.000 kr.39.150.000 kr.83.8 m2467.183 kr.
03/02/200918.380.000 kr.28.600.000 kr.83.8 m2341.288 kr.Nei
02/01/200918.380.000 kr.25.000.000 kr.83.8 m2298.329 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dugguvogur 1 - Íbúð 406
Bílastæði
Dugguvogur 1 - Íbúð 406
104 Reykjavík
64.4 m2
Fjölbýlishús
211
1070 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1 - Íbúð 505
Bílastæði
Dugguvogur 1 - Íbúð 505
104 Reykjavík
64.1 m2
Fjölbýlishús
211
1090 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 8
Skoða eignina Ljósheimar 8
Ljósheimar 8
104 Reykjavík
99.7 m2
Fjölbýlishús
412
711 þ.kr./m2
70.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 62
60 ára og eldri
Skoða eignina Kleppsvegur 62
Kleppsvegur 62
104 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
211
813 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin