HÁKOT fasteignasala sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsir
** ÁSENDI 6 - HÚSAFELLI ** Sumarbústaður (55 m²) á EIGNARLÓÐ (1.250 fm) í landi Húsafells, Borgarbyggð.
Forstofa (parket, skápur, fatahengi).
Hol (parket).
Herbergi (parket, kojur).
Svefnherbergi (parket, rúm).
Baðherbergi (dúkur, flísaþyljur á vegg, sturta í gólf, hvít innrétting, útgagnur út á Verönd).
Herbergi (parket, kojur)
Stofa (parket, útgangur út á verönd m/heitum pott),
Eldhús (parket, hvít innrétting, helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél - opið að stofu).
Geymsla (málað gólf, hillur, inngangur frá verönd).
Annað: Panelklædd loft og niður á veggi (ekki baðherbergi). Innihurðar ljós viður. Stór verönd með heitum pott. Kynt með hitaveitu. Allt innbú fylgir bústaðnum. Staðsett stutt frá sundlaug, hóteli og veitingarstað.
Heitt vatn ca 18.000 á mánuði (kominn mælir eftir notkun)
Fasteignagjöld eru kr. 171.836 á ári.
Lóðin er á friðsælum stað á Húsafelli en þrátt fyrir það er aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá hóteli, veitingahúsi og sundlaug.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 kílómetrar. Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin er kvöldskemmtun með varðeld og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgangi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni. Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafn á sumrin og veturna. Stutt upp á jökul, góðar gönguleiðir, sundlaug, golfvöllur, veitingastaður, verslun o.fl. Þjónustustig stöðugt að aukast á svæðinu.
Hægt er að skoða vefsíðu Húsafells á http://www.husafell.is, þar eru upplýsingar um svæðið og dagskrána.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.