Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð
(þrjú svefnherbergi) á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Dugguvog 13 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Í íbúðinni eru
tvö baðherbergi, þar af annað inn af hjónaherbergi, og
þvottahús er innan íbúðar. Frá stofu er gengið út á
suðvestursvalir. Eigninni fylgir
sérmerkt bílastæði í bílakjallara og þaðan er innangengt í lyftu- og stigahús. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar
122,40 fermetrar, þar af er sérgeymsla í kjallara 18,5 fermetrar. Bílastæðið er ekki innifalið í fermetratölu eignarinnar. Húsið er er einstaklega vandað, það er
byggt 2023 af ÞG Verk. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki
Eignin getur verið laus mjög fljótlega.Aðal sölupunktar:- Tvö baðherbergi
- Þvottahús innan íbúðar
- Suðvestursvalir með möguleika á svalalokun
- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og innangengt í lyftuhús
- 18,5 fm sérgeymsla í kjallara
- Sameiginleg hjólageymsla
- Húsið er byggt 2023 af ÞG Verk. Það er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki
- Gluggar úr ál/tré með K-gleri
- Eignin getur verið laus mjög fljótlega
Um er að ræða vandaða eign í húsi sem ÞG Verk byggði. Vogabyggð er nýlegt og eftirsótt hverfi við sjávarsíðuna, stutt frá Elliðaárdal og Laugardal.Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús og stofu í opnu alrými, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara, sérmerkt bílastæði í bílakjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.
Nánari lýsing:Anddyri / forstofa: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Eldhús / alrými: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými. Vönduð innrétting frá þýska framleiðandanum Nobilia með lýsingu undir efri skápum. AEG eldhústæki: spanhelluborð, blástursofn, vifta, innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð stofa sem er opin við eldhús. Harðparket á gólfi og útgengt á suðvestursvalir. Möguleiki er á svalalokun.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum frá GKS og harðparketi á gólfi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting með speglaskáp. Sturta með flísalögðum botni og hertu sturtugleri, vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa og blöndunartæki frá Grohe.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting, sturta með hertu sturtugleri og vegghengt salerni.
Þvottahús: Sérrými innan íbúðar. Flísar á gólfi.
Geymsla: Sérstaklega rúmgóð 18,5 fermetra sérgeymsla í kjallara.
Staðsetning: Vogabyggð er skjólsælt og fjölskylduvænt hverfi við sjóinn. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni og upp í Elliðaárdal, og Laugardalurinn er innan seilingar. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Lúxus fasteignir -
Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt