OPIÐ HÚS - ROFABÆR 7 - ÞRIÐJUDAGINN 21. APR - FRÁ KL.17.30 - 18.00.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og rúmgóða 112,8 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýli með lyftu, stæði í bílageymslu, sameiginlegu rými til útiveru á þaki hússins. Húsið stendur í grónu hverfi í Árbænum og því stutt í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir í Elliðarárdalnum. Einnig er stutt á stofnbrautir til og frá vinnu.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi og skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðvestur svalir.
Eldhús er með parketi á gólfi og brún viðarinnrétting með hvítum efri skápum.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skáp í öðru herberginu og fataherbergi í hinum ásamt baðherbergi. Á baðherbergi eru flísar í hólf og gólf, handklæðaofn, upphengt wc, opin sturta, skúffur undir vask og speglaskápur yfir vask.
Baðherbergin eru tvö eitt í aðalsvefnherbergi og annað á herbergjagangi þar eru flísar í hólf og gólf, upphengt wc, opin sturta, skúffur undir vask og speglaskápur yfir vask og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar og þar eru flísar á gólfi, skápar ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign og er rúmgóð.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign og líka köld sameign á lóð.
Stæði í bílageymslu er í bílakjallara undir húsinu.