Erling Proppé lgf. & Remax kynna: Bjarta, vel skipulagða tveggja herbergja íbúð með sólríkum svölum á fyrstu hæð í mjög vel staðsettu fjölbýlishúsi í Árbænum. Fyrir allar nánari upplýsingar hafið samband við Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is
Framvæmdir síðustu ára í húsinu skv. Seljanda: - Gluggar og svalarhurð endurnýjað, ál/tré gluggar, sumarið 2023 -
Þak endurnýjað fyrir 6 árum síðan (járn,pappi,borð)
- Húsið drenað allan hringin fyrir 3 árumSkv. FMR er eignin skráð 61,8 m2, þar af er geymsla 5,9 m2
Skipulag eignarinnar: Forstofa, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa, geymsla, þvottaherbergi ásamt hjólageymslu í sameign.
Nánari lýsing eignar: Forstofugangur: Parketlagður forstofugangur með fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt, salerni, innrétting og vaskur með speglaskáp, handklæðaofn, sturta og tengi fyrir þvottavél.
Stofa: Björt stofa og borðstofa með parket á gólfum. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa í suður og eru einstaklega skjólsælar að sögn seljanda.
Eldhús: Gott eldhús með góðum borðkrók, möguleiki að opna inn í stofu úr eldhúsi, fordæmi úr öðrum eignum.
Svalir: Rúmgóðar svalir sem snúa í suður.
Geymsla: Sér geymsla er í kjallara með góðum hillum.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottaherbergi með sér tenglum og stórt þurkherbergi. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í vel staðsettu fjölbýli með sameiginlegum leikvelli fyrir börn, stutt í alla helstu þjónustu og samgöngur. Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.