RE/MAX og Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali kynna tveggja herbergja íbúð við Karlagötu 19. Eign á frábærum stað í nálægð við miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða 42,4 fm eign í kjallara í litlu fjölbýlihúsi. Hægt að yfirtaka leigusmaning. Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í sameiginlegt rými fyrir framan íbúðina.
Eldhús: Eldhúsið er með snyrtilegri sprautulakkaðri innréttingu með eikarborðplötu, eldavél og ofni. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og nýlegt harðparket er á gólfi.
Geymsla inna íbúðar: Lítil geymsla er innaf eldhúsinu sem liggur undir stigan sem leiðir upp á efri hæðina.
Stofa: Stofan er björt og rúmar bæði borðstofu og stofu, fallegt harðparket er á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er rúmgott með nýlegu harðparketi á gólfi og góðum fataskáp með speglahurðum, innaf fataskápunum er innbyggðt lítið fatarými.
Baðherbergi: Nýlega var baðherbergi tekið í gegn, gólf og veggir voru flísalagðir, salerni er nýlegt sem og vaskur, góð sturta er á baðherberginu.
Geymsla nr. 2 : í sameign er sér geymsla með hillum, þarnast lagfæringar.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í sameign þar sem hver er með sína þvottavél.
Þetta er vel staðsett íbúð í miðbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í alla þjónustu á rólegum stað. Stutt í miðbæðinn sem leik-grunn og háskóla.
Mæli með að skoða vel og kynna sér ástand eignarinnar vel. Eigandi hefur ekki búið í eigninni undanfarin ár.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla helgadóttir í síma 820-0490, gudrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.